Ég er með sims konu sem er búin að reyna við alla einhleypu kallana í hverfinu en enginn vill fara út með henni nema einn giftur gaur. Svo hún bauð honum loksins út að borða og deitið byrjaði fremur brösulega. Svo virtist sem hún væri ekkert að fíla hann jafnmikið og hann var að fíla hana. En það lagaðist og fljótlega voru þau farin að kela á fullu. Nema eftir smá skreppur hún á klóstið, kemur svo fram og kyssir hann á fullu og svo stekkur hann á klóstið. Svo er hann ekki nema rétt farinn þegar konan hans gengur inn á veitingastaðinn! Og mín heilsaði henni bara voða pent…

Svo fékk ég ekki að sjá meira því leikurinn fraus. Ég er ekkert smá fúl! :(