Já eitt sinn þegar ég var oft í sims ákvað ég eitt sinn að búa til fjölskylduna mína(pabbi, stjúpmóðir, bróðir og systir og náttúrulega mig)
Ég byrjaði á því að láta litla bróðir minn sjá um öll leiðinlegu störfin eins og að skúra gólf og fægja og svoleiðis, þangað til hann neitaði eitt sinn því hann vildi leika sér. Þá múraði ég hann inni í garðinum þar sem hann svalt í hel og fór í herinn. Ég man ekki hvað ég lét systir mína gera en hún dó held ég lika. En þess má til gamans geta að vinur minn bjó líka til sinn sim og prófaði að koma í heimsókn, og byrjaði að tala við konuna hans pabba í dálittla stund, þar til allt í einu eftir að þau höfðu farið nakin í nuddpott saman, þá giftust þau. Nú ég reyndi á fullu að fá hana til baka, en hún vildi það ekki, svo ég brenndi húsið til kaldra kola og við það dó persóna vinar míns, en konan var enn á lífi. Og var bara að reika um brennandi húsið að forðast helvítis trúðinn sem var alltaf í fýlu, sem ég reyndi líka að drepa en gat það ekki. Og svo þegar ég kíkti aftur þangað sem áður var heimilið hans pabba, þar var allt í rusli og drasli. Þessa hluti sem konan var vön um að sjá um. Það endaði með því að ég gaf þetta allt upp á bátinn og eyddi þessari fjölskyldu.
En sniðugt samt finnst ykkur ekki, hvernig söguþráð er hægt að gera í þessu og næstum allt er hægt……..
————–