Ég er farin að halda að ég sé eitthvað alvarlega skrýtin þar sem að alltaf þegar ég fer í Sims (sem er ansi oft) þá er ég helst að byggja hús, raða húsgögnum í þau og klára, læt svo fjölskylduna flytja inn og svo eyðilegg ég bara húsin og byrja aftur upp á nýtt… Ég er allavegana eina manneskjan sem ég veit um sem gerir þetta. Ég held barasta að ég hafi ekki þolinmæði í það að láta fólkið kynnast öðru fólki, mata það og láta því ganga vel í vinnunni. Ég vildi bara vita hvort að ég væri sú eina sem að gerir svona eða hvort að það séu til fleiri skrýtnar manneskjur eins og ég? Kv. Lorax