Eitt sem fer alveg hryllilega í mig og er ömurlega pirrandi. Í sims eru reyndar nokkrir hlutir sem eru svona en þetta er eitt versta atriðið…

Maður sér að þau verða að fara á klósettið og smellir á klósettið til að senda þau þangað (þrátt fyrir að þau ÆTTU auðvitað að fara þangað sjálf!) en fara þau þangað strax? Neibb. Rauða klósettblaðran kemur fyrir ofan hausinn á þeim svo arga þau og arga, beygja sig saman og kveina! Í stað þess að drulla sér af stað eins og maður sagði þeim fyrir 2 mínútum síðan!

Það eru alveg geðveikt heimskuleg atriði í þessum leik.<br><br><a href="http://www.rithringur.is">Rithringur.is - Vettvangur fyrir rithöfunda</a