Ok ég er í smá vandræðum. Ég var að byrja að spila sims aftur eftir langt hlé og það er eitt sem að fer ferlega í taugarnar á mér. Í sambandi við að þegar maður á gæludýr og ætlar að fara í ferðalag og vera í burtu í nokkra daga. Gæludýrin koma þá að sjálfsögðu með manni en á hótelunum og því eru engar matarskálar, staður fyrir dýrin að sofa á o.s.frv. Þannig að dýrin bara veslast upp og deyja !
Ég er með Simscategorizer og er búin að reyna að flytja þessa hluti yfir en það gekk ekki.
Er einhver með hugmyndir hvað hægt sé að gera ?

Þetta er svona eitt atriði sem fer ofboðslega í taugarnar á mér við EA. Þeir eru alltaf að sleppa út nýjum og nýjum viðbótum en athuga ekki að passa upp á að þær virki saman.

kv. Alfons *orðin þreytt á peningaplokkinu í EA*
-Song of carrot game-