Er enginn annar en ég orðin(n) þreytt(ur) á endalausum viðbótum við sims. Ég hef ekki prufað allt en eftir að hafa prufað sumt af því get ég ekki hugsað mér að spila Sims án þess. Hvernig væri að gefa út Sims special edition á DVD með öllum viðbótum og öllu. Þetta er bara gróðabrask að senda út öðruhverju disk á 5000 og er ekki komnar 6 viðbætur eða eitthvað. Það yrði auðvitað að hafa DVD drif á tölvunni en það er orðið í flestum tölvum. Ég myndi pottþétt kaupa ef það kæmi svona DVD Sims pakki.
Annars er ég mjög ánægður með Sims og vona bara að Simcity 4 og Sims Online séu góðir!!!