Kæru hugarar..
Ég hef spilað sims leikinn lengi en ég skil bara ekki eitt.
Ég skil ekki hvernig getur maður saveað myndir úr sims leiknum inn í tölvuna???
Sko það voru nefnilega einhverjar keppnir hérna á þessu áhugamáli og þá á fólk að senda inn myndir af húsinu sínu en ég bara hef ekki fattað hvernig maður gæti það.
Ég las hérna einhver staðar líka að það væru að fara að hætta með þessar keppnir sem mig langaði svo mikið að taka þátt í því engnir nenntu að senda inn myndir eða eitthvað þannig en ég hef bara ekki fattað hvernig maður getur sent myndir úr leiknum hjá sér og kannski voru einhverjir fleiri en ég sem vildu taka þátt í þessari keppni en kunnu bara ekki að senda inn þessar myndir og gátu því ekki tekið þátt.
En allir sem vita svarið við þessari spurningu minni skulu endilega senda mér svar.

Kv. Hallat