Ég gerði einu sinni 8 manna fjölskyldu og spólaði áfram þangað til þau dóu. Þegar þau dóu komu legsteinar svo ég bjó til kirkjugarð.
Svo bjó ég til fjölskyldu með mömmu pabba og dóttur og lét þau flytja í kirkjugarðinn. Svo bjó ég til geðveikt flott hús og hafði dýrustu hlutina. Þegar ég var búin að gera það byrjaði ég að leika með fjölskylduna. En alltaf á nóttinni komu draugarnir og hræddu fólkið. Svo fór allt að ganga illa hjá þeim eins og t.d. tölvan brotnaði og það kviknaði í. Svo var alltaf verið að hringja í mann og segja að draugarnir hafi valið mann og að vondir hlutir eigi eftir að gerast.