ég hef spilað sims rosalega lengi, ég er með the sims,thesims livinitup og hotdate. Um daginn fór ég í fjölskyldu sem var geðveikt langt síðan ég hef farið í. Þeim gekk bara vel, áttu fínt hús og voru að vinna sig upp í vinnunni og sollis. So tók ég alt í einu eftir því að kallinn minn hnerraði alltaf og hóstaði þegar hann kom úr baði og heita pottinum.Ég fór að fylgjast með essu og hann varð alltaf verri og verri og konan smitaðist. Þeim leið alltaf illa, mættu ekki í vinnuna og hættu ekki að hósta og hnerra. Ég var orðin mjög áhyggjufull og hélt að þetta væri kannski ofnæmi fyrir naggrísnum þeirra og prófaði að henda honum en þau löguðust ekkert.Einn daginn ætlaði ég að reyna að drösla kellingunni í vinnuna svo þau myndu ekki drepast úr hungri og lét hana fara í bað, en svo fór hún allt í einu að fá hræðilegt krampakast á baðherbergigólfinu, kúgaðist og lagðist að lokum niðrá gólfið og hnipraði sig saman(sona hélt utan um hnén á sér) og sok drapst hún bara. Í myndaalbúminu var sagt “Melody has died from an unknown illness”. Þetta hefur aldrei gerst hjá mér áður. Kallinn hennar, Alan, batnaði smámsaman og gifti sig aftur og fékk sér vinnu. En veit einhver hvernig á að láta þau batna ef þau verða aftur veik og er einhver ástæða fyrir því að þau verða veik?