Jæja, hér ætla ég að segja ykkur frá nokkrum síðum, og hlutum sem hægt er að finna frítt fyrir leikinn.

The sims on a stick : http://hrlnx.aem-east.com/slemmer/thenewsos/

Hér eru nokkrir sniðugir hlutir til, mest þá kannski málverk af simsa og leigubíl, sem gerir það að verkum að allir í hverfinu verði vinir þínir, með minnst 55 í friendship. (ég er með unleashed, og ég er með yfir 30 vini :p )
Svo er líka “endurbætt” expresso vél, sem hækkar mood hjá manni, og það er líka til “magic fruitcake” sem gerir það sama, nema ekki alveg jafn gott. Það er bara um að gera að skoða síðuna, margt sniðugt.

Önnur snilldarsíða er www.simslice.com

Þar er hægt að fá “rejuvinator” fyrir fólk og dýr :)
Fyrir dýrin lítur það út eins og kattarklósettið, en bæði dýrin geta notað það. Dýrin fá alveg fullt í ÖLLU.
Það er líka til fyrir fólk, þannig þetta kemur í staðinn fyrir að deleta simsanum, og fá hann aftur ;)
Þarna er líka tæki til að fá að velja um allar vinnur, og fyrir krakka til að hækka um einkunn í skóla ;)
Það er mikið af svona dóti á þessari síðu, líka tæki sem eldar fyrir mann og fleira.
Eitthvað á þessari síiðu kostar, en það er fullt af frídóti inná milli

Besta algjörlega frí síða er án efa http://home.no.net/mysims/

Hlutir fyrir unleashed : Lítil katta og hundahús
Matardalla með eitruðum mat (ef manni er illa við dýrin sín :/ )
Mjög sniðugt eru leikföngin sem hækka housebreaking og hunting hjá dýrunum á meðan þau leika sér, einnig er matardallar sem hækka þau í mood, personality, og skills! æðislega sniðugt! :)
Það er endalaust af hlutum á þessari síðu til að hækka ýmislegt hjá simsinum, án þess að svindla beint.
Before you criticize someone you should walk a mile in their shoes…