Ég bjó til uppáhalds fjöldskylduna mína fyrir soldlu og byrjaði á því að búa til einn karl sem hét Walt Disney. Karlinn flutti inn í fallegasta og mest vel skipulagðasta hús sem ég hef búið til. Hann fór svo að búa til töfradrykki á fullu og fékk loksins það sem hann hafði beðið eftir, rauðan ástardrykk. Walt varð ástfanginn af konu úr bænum sem hét Allyn. Hann varð svo mikið ástfanginn að þau giftust. Nú voru þau tvö í húsinu, Walt og Allyn Disney.

Walt og Allyn ættleiddu strák sem þau skírðu Patric Disney. Hann var fljótur að stækka, tók hann bara þrjá daga (eins og allir aðrir krakkar). Hann hafði ekki góðann fatasmekk því hann gekk í fötum sem ég downloadaði fyrir stelpur :Þ

Svo eignuðust þau annann krakka, aftur strák sem þau skírðu Eric. Hann stækkaði líka og gekk í miklu flottari fötum en Patric, með derhúfu og allt. Nú voru þau fjögur, Walt, Allyn, Patric og Eric Disney.

Síðan downloadaði ég tveimur krökkum, Thomas og Diönu. Þau stækkuðu líka og þetta endaði þannig að í fjöldskyldunni voru:
Walt, Allyn, Patric, Eric, Thomas, Diana og hamstur.