Ókei fyrir smá tíma örugglega í vor var ég í The sims og ég bjó til fjölskyldu bara kall og kona svona þokkalega efnuð. Svo voru þau bæði útivinnandi og á kvöldin var alltaf svona kósý tími, og eitt skiptið voru þau í heita pottinum og hann spyr hana hvort hún vilji eignast barn. Hún segir já og svo er barnið bara komið og úti og auðvitað rosa mikil fagnaðarlæti. Svo geri ég (move_objects on) og færi barnið inn. (Því að ég vildi ekki hafa greyið barnið úti) Konan hættir að vinna og hugsar um barnið og svo stækkar strákurinn(því þetta var strákur). Sama kvöld eignast þau annað barn! Strax eftir að hinn strákurinn(því þetta var strákur líka) stækkar, þannig að konan hugsar um eitt barn í viðbót en fær smá hjálp frá eldri stráknum. (sem betur fer:) Svo stækkar yngri strákurinn og ég læt kalllinn (minnumst svolítið á hann líka) kyssa konuna. Þá kemur spurningin viltu eignast barn? Ég hugsa æ höfum bara aðeins stærri fjölskyldu. En hvað gerist þá, auðvitað var þetta strákur! Nú var þessi litla fjölskylda sem ég bjó til fyrst (kall og kona) búin að stækka um þrjá! Og ég læt yngsta strákinn stækka. Þetta var uppáhaldsfjölskyldan mín í langan tíma. En litla systir mín þurfti endilega að koma sinni fjölskyldu fyrir og eyddi húsinu! Ég nennti ekki að búa til nýtt hús vegna þess að gamla húsið var svo fínt fyrir þau þótt það væri bara eitt herbergi í því. Þau sváfu öll í því! Fimm í herbergi fyrir tvo!!

En nýja viðbótin er hún með fullt af dýrum og þá þarf maður ekki að vera bara með downloduð dýr eða bara alls engin.

Kv.

Helgacool