Smá hugmyndir Það var einhver sem kom með þá hugmynd á sínum tíma að við myndum búa til svona kubb þar sem að fólk sem býr til sína eigin hluti/skins í Sims gætu sent það inn í kubbin og svo gæti maður downloadað. Væri þá kannski líka hægt að hafa kubb þar sem hlutir/skins frá erlendum síðum væru til boða.
Það mætti kannski athuga þetta, ræða við vefstjóra.
Svo findist mér líka sniðugt að ef búin yrði til svona “dagbókarkubbur” þar getur maður búið til sögur um simsana sína með myndum. Þetta hef ég séð á öðrum síðum t.d. <a href="http://www.thesims.se/"> Þessari</a> - kíkið bara undir dagbok. Síðan er að vísu sænsk en það skiptir ekki máli þið getið allaveganna séð hugmyndina sem ég er að koma með. Maður þarf að skrá sig til að skoða (vinstra megin á síðunni), það er nú ekki flókið mál, bara e-mail adressuna og lykilorð :)
Við verðum allaveganna að reyna að finna upp á einhverju til að lífga áhugamálið við. Endilega reynum að láta okkur detta eitthvað skemmtilegt í hug !

Kv. Alfons

p.s. fylgir með mynd úr húsinu mínu sem ég hafði í keppninni.
-Song of carrot game-