Jæja, nú er allt að skýrast betur í sambandi við keppnina :)
Það er frestur til 28 júni sem er næsti föstudagur til að skrá sig
í keppnina, og það verður að vera búið að senda okkur allar myndir fyrir 5 júlí, semsagt þarnæsti föstudagur :)
Svo verðum við búin að birta hver vann á mánudaginn 8, þá verður settur upp kubbur hérna með myndunum af því húsi sem vann.
Það þurfa 5 til að halda þessa keppni, ef það verða 10 (eða fleiri) þá dæmum við líka í annað og þriðja sætið og setjum þær myndir líka hérna svo allir geta séð.
þið ráðið svosem alveg hvernig þið sendið okkur þetta, þið getið sent þetta sem myndir inná áhugamálið, eða sent okkur myndirnar
í email. En ef þið sendið þær í email, sendið þá allar myndirnar
til mín og evilgod, svo við sjáum bæði myndirnar.
Og ef þið sendið sem myndir inná áhugamálið, setjið þá “keppni” sem lýsing þannig það er alveg á hreinu. :)
Þær sem kunna það geta líka sent okkur húsið sem file sem við setjum inní leikinn, en ég veit ekki hvernig það er hægt, þannig ekki spurja mig útí það :p
Endilega takið þið sem flestar myndir, allavegana eina af hverju herbergi! og 2-3 yfirlitsmyndir af húsinu af utan, ef okkur finnst
mynirnar of ógreinilegar, litlar, eða of fáar þá getur verið að það hús verði bara úr leik ef við sjáum ekki nógu vel hvernig húsið ykkar lýtur út.
Eins og er eru bara 3 búnir að skrá sig, þannig endilega takið þátt ef þið hafið áhuga! :)
Þið megið endilega senda mér skilaboð eða email ef þið hafið einhverjar spurningar eða athugasemdir (msn addressan mín er á kasmir síðunni minni ef þið viljið tala við mig þar)
Gangið ykkur öllum vel!

simskveðja,
betababe
Before you criticize someone you should walk a mile in their shoes…