Keppni!! Rewer var að koma með mjög góða hugmynd um að þeir hugarar sem spila sims geta búið til eins flott hús og þeir geta, taka alveg fullt af myndum af því og senda okkur evilgod, og við dæmun um flottasta húsið.
Það má að sjálfsögðu nota peningasvindl ef þið viljið, og það er stranglega bannað að downloada húsum frá netinu, ég ætla að fara á alla teglana hérna og skoða hvort það séu einhver hús stolin áður en það verður dæmt. Og ef það er eitthvað hús frá netinu þá verður það að sjálfsögðu úr leik strax.
Það eru engin verðlaun eða svoleiðis, nema myndirnar verða settar upp í sér kubb hérna svo allir geta séð :)
Allir þeir sem hafa áhuga skrifið hérna fyrir neðan, við þurfum allavegana 5 til að halda þessa keppni, ef það verður fleiri en svona 7 - 8 þá dæmum við líka í 3 og 2 sæti, og setjum líka myndir af því upp :)
Við höfum þetta opið í nokkra daga, svo það fá allir tækifæra sem vilja til að skrá sig.
Svo þegar allir eru búnir að skrá sig, þá fá þeir viku frest til að byggja húsið og senda inn myndirnar, ég læt ykkur vita þegar það byrjar :)
Gangi ykkur vel!
Kv. betababe
Before you criticize someone you should walk a mile in their shoes…