Holliday/ný exspansion pack ! Jæja nú er ég alveg á fullu í Sims eftir að ég keypti mér nýju viðbótina Sims on holliday. Ótrúlega skemmtileg viðbót, ein sú best finnst mér.
Það er svo margt skemmtilegt hægt að gera í leiknum núna, einhver var búin að senda inn grein um flest allt sem hægt er að gera í nýja pakkanum svo það er engin ástæða fyrir mig að gera það líka. En ég myndi allaveganna mæla hiklaust með að kaupa hana.
Það eru mjög margir Sims aðdáendur búinir að bíða lengi eftir viðbót af þessu tagi, eins og hot date og holliday. Að geta látið Simsana sína fara eitthvert, ég tala nú ekki um að geta tekið sér frí frá vinnu og skóla án þess að eiga hættu á að vera rekin eða sendur í herskóla.
En allaveganna ég man eftir því fyrir langa löngu síðan, fljótlega eftir að áhugamálið kom upp hér á huga, vorum við hér að tala um hvað við myndum vilja sjá koma í leikinn. Við vorum með allskonar hugmyndir á lofti, en ég var að spá í hvað mynduð þið vilja fá sjá bætast inn í leikinn núna þ.e. næsta “aukapakka” (expansion pack) ?
Ég ætla að nefna nokkur atriði sem ég myndi vilja fá:
1. Árstíðarskipti
2. Að börnin vaxi úr grasi og Simsarnir eldist
3. Fleiri störf
4. Það að “vinirnir” geti hringt í mann bara til að kjafta. Ekki bara að Simsinn manns geti hringt í vinina til að kjafta eins og það er nú.
5. Fleiri gæludýr, mér finnst þau ekkert spes á killersims.com nefnilega.

Og svo fleira, væri gaman að heyra hverju þið mynduð vilja bæta við.

Simskveðja Alfons
-Song of carrot game-