Ég hef hangið mikið í Sims í gegnum tíðina, búinn að kaupa Livin it´up og House party en fyrir stuttu henti ég leiknum útaf því ég var að setja einhvern annan leik inná því það var of lítið pláss inná tölvunni.
Svo þegar ég kláraði leikinn þá setti ég upprunalega Sims inná tölvunna og einhvernveginn fannst mér hann vera langskemmtilegastur af öllum leikjunum. Mér fannst sumt vera svo óraunverulegt í viðbótunum, eins og til dæmis tilraunasettið, mér finnst það vera hálfgert svindl að nota það, og andann í lampanum líka, maður gat unnið “Pot Of Gold” og eitthvað því um líkt, og svo var bara geðveikt mikið af hlutum en maður er alveg laus við það í fyrsta Sims leiknum. Hann er bara langraunverulegastur og skemmtilegastur að mínu mati.

En allavega, vildi bara deila þessu áliti með ykkur, og endilega segið mér hvaða leikur ykkur finnst skemmtilegastu