Nýtt prógramm Jæja nú er komið nýtt prógramm fyrir hot date fólk á síðunni http://www.thesims.com. Prógrammið heitir “The sims - make a date” og þar getur maður sem sagt búið til einstaklinga sem maður getur svo farið á stefnumót niðri í bæ með.
Þetta er það sem þeir segja um prógrammið á síðunni sjálfri (www.thesims.com) - ég nenni ekki að þýða það …
“You not only get to pick the look of your date, you can create the perfect attitude, guaranteeing the best possible outcome while playing footsie under the table.
The Sims Hot Date Make-A-Date tool is for Hot Date owners that wish to add some new townies to their downtown area. Custom-create your own townies today!”

Með prógramminu ákveður maður sem sagt hvernig nýju “bæjarbúarnir” líta út (svipað og þegar maður býr sér til nýja fjölskyldu), hvaða áhugamál þau hafa, svo líka þættina neat, active, outgoing, nice og playfull. Svo velur maður hvaða starf viðkomandi á að hafa og hversu langt hann á að vera komin í því.
Þannig að maður getur þá búið sér til “bæjarbúa” sem er með sömu áhugamál og líkan persónuleika og simsinn sem maður er að spila. Og þá ætti maður að hafa stærri séns á að sambandið gangi vel.
Það er reyndar eitt að ekki öll skin passa á öll “bodys” svo að þá kemur ferlega skrýtin mynd upp, en þið þurfið þá allaveganna ekki að hafa áhyggjur af því að eitthvað sé að prógramminu. Bara reyna að finna skin sem passar bodyinu þá.

Ég er búin að downloada prógramminu og prufa það aðeins og mér líst mjög vel á þetta allt saman svo ég hvet ykkur öll að fara á http://thesims.com og downloada þessu prógrammi. Þið finnið það undir “get cool stuff” á síðunni.
Góða skemmtun !

Simskveðja Alfons
-Song of carrot game-