Sko ég er aðeins 12 ára og ég var ekki mjög þolinmóð þegar ég fékk Sims (í 11 ára afmælisgjöf) svo að ég notaði alltaf svindl nú langar mig ekki að nota svindl en ég geri það ósjálfrátt!!!
Eins og þegar maður ætlar að láta fólkið safna fyrir einhverju þá kanski getur maður ekki klárað húsið! En mér er alveg sama þá nota ég svindl og fæ aðeins meiri pening og svo aðeins meira og aðeins meira þangað til ég er komin með 100.000 kall!! Svo á ég líka 6 ára litla systur sem er alltaf í mér að suða einhverneginn svona!
Settu innisunglaug hafðu heitapott hafðu hitt og hafðu þetta!
En í gær ætlaði ég að búa til fjölskyldu sem safnar sér fyrir hlutum ókei lét kallinn og konuna vinna á sama stað fengu 110 á dag samtals 220 kall. Svo eina nóttina kemur þjófur og stelur eldavélinni og litla sjónvarpinu og svo myndinni sem kallinn átti að fara að selja. Allt þetta gerðist af því að ég vildi ekki setja þjófsvörn því ég hélt að þau ættu ekkert verðmætt en ég ætla að prófa á eftir að reyna aftur að spara en á meðan ég man hvort er betra að hafa bara kall og konu þegar maður er að spara eða kall,konu og krakka???