Jæja samkvæmt “ég ætla” kubbnum eru 37 manns sem ætla að byggja sér hús niðri í bæ, svo ég spyr hvernig gengur hjá ykkur ?
Þegar ég byrjaði að byggja niðri í bæ var ég nú ekki lengi að átta mig á því að þetta er mun meiri vinna en ég bjóst við í byrjun.
En þetta er náttúrulega mjög skemmtilegt verkefni.
Hvað er það sem þið byggið svo niðri í bæ ?
Ég er að byggja veitingarstað sem er með næturklúbb á efri hæðinni og svo er ég jú með eins og 2 stykki búðir. Ég er ekki alveg búin, er eiginlega stopp í bili því klósettin sem voru downtown hurfu hjá mér en það á víst að koma “patch” á thesims.com til að laga það bráðlega. Annars hef ég líka heyrt að maður getur hlaðið niður klósettum frá night time sims en síðan þeirra virðist bara ekki vera alveg í lagi.
Jæja allaveganna þá verður ekkert smá gaman að sjá hvernig simsunum gengur í húsinu sem ég er að byggja handa þeim, verður gaman bara að fara niður í bæ til að sjá hvort allt gangi ekki vel fyrir sig. Það er náttútulega ekki gaman ef þeir eru að festast út um allt.
Jæja endilega segiði hvað það er sem þið eruð að byggja niðri í bæ, verður gaman að heyra ólíkar hugmyndir :)

Simskveðja Alfons
-Song of carrot game-