The Sims. Himnaríki fullorða fólksins. Helvíti fyrir börn.
Reyndar er það krökkunum að kenna ef leikurinn verður að helvíti.

Lítil dæmisaga:
Einu sinni voru karl og súpermódel í koti sínu. Þau bjuggu í litlu húsi á einni hæð. Húsið var fullt af smekklegum húsgögnum og fólkið átti 8.000 kall í bankanum sínum. Þá dundi ógæfan yfir. Súpermódelsfíflinu langaði í krakka. Karlinn samþykkti auðvitað (ég meina, hver segir nei við súpermódel?) og í einum vettvangi birtist lítið krúttlegt barn í miðju eldhúsinu.

-The beginning of the end-
Eftir að hafa fært krakkann inn í svefnherbergið settust karlinn og súpermódelið fyrir framann arineldinn, fengu sér kampavín í kók, og ætluðu að eiga rómantíska stund. Krakkinn fer að grenja. Súpermódelið panikkar og hleypur inn á bað. Karlinn fer og lyftir krakkanum upp. Krakkin grenja. Karlinn gefur krakkanum pela. Krakkinn grenjar áfram. Það tók meira en klukkutíma að fá krakkann til að þegja. Klukkan var orðin margt og kominn tími til að fara að halla höfðinu á koddann og svífa inn í draumaheim.
Sénsinn.
Krakkinn fer að grenja.

Svona gekk þetta í þrjá daga. Karlinn missti vinnuna (var með meira en 800 kall á dag)… heimilið var í rúst.

-The beginning of the end (continued)-
Krakkinn eltist og varð að krakka. Þá skapaðist vandamál. Það þurfti að búa til nýtt herbergi handa honum. Ég þurfti að endurskipuleggja allt húsið. Ég varð að færa allt í eldhúsinu til að koma fyrir hurð. Til að geta fært allt í eldhúsinu varð ég að breyta allri stofunni o.s.frv.
Ég þurfti að kaupa rúm, lampa, dótakistu og ég veit ekki hvað.
Fjárhagurinn var í rúst. Súpermódelið varð að fá sér vinnu því karlinn fékk ekki nóg borgað í nýju vinnunni. Þá skapaðist vandamál. Þegar krakkinn kom heim úr skólanum var enginn annar heima. Krakkinn var yfirleitt glorsoltinn en getur ekkert eldað. Eftir að hafa fengið sér átján snacks þurfti hann að læra og bla, bla, bla.

Eftir nokkra daga fékk ég nóg af þessu krakkaskrípi svo ég eyddi síðustu aurunum í að búa til sundlaug sem ég notaði svo til að drekkja krakkanum.

Látum ekki krakkaasna eyðileggja líf okkar. Verum tilbúin með sundlaug þegar þetta lærir að labba.