Húsið mitt Húsið mitt í the Sims er mjög stórt. Það er á 2 hæðum og er með öllum dýrustu húsgögnunum.

Ég nota svindlið til að fá endalausa peninga þegar ég spila. Ég veit ekki hvað ég er með mikla peninga núna en ég er alltaf að gera þetta svindl því peningarnir eyðast svo fljótt.

Það eru 2 fullorðnir og 2 krakkar í fjölskyldunni minni. Fullorðna konan líkist, Helgu Brögu mjög mikið, fullorðni kallinn líkist, Michael Owen mjög mikið en strákarnir 2 eru því miður mjög nördalegir.

Ég spila leikinn í cirka klukkutíma á dag með undantekningum. Það sem er t.d í húsinu mínu er sundlaug og hún er INNI í húsinu. Ég er með grill inni í húsinu sem ég nota mjög oft. Svo er ég með fullt af málverkum, styttum og alls kona svoleiðis glingri.

Þegar ég byrjaði að spila leikinn vissi ég ekkert hvernig ég ætti að losna við hann en veit það núna. Ég finn svindlin sem ég nota á tvem síðum en þær eru: http://www.cheatplanet.com og http://www.chaptercheats.com. Ég veit að sumir hérna eru á móti svindlum en ég nota þau óspart. Án svindlanna væri ég væntanlega ömurlegur í leiknum svo að ég sleppi þeim ekki.

kv. nonnibenni