Roberts family Hérna kemur sagan af manni sem ég gerði einu sinni. Hann hét John og var ljóshærður og bláeygður hárgreiðslumaður og kokkur. Hans draumur, eða réttara sagt minn draumur, var að hann myndir opna bakarí og hárgreiðslustofu.

Hann flutti í sæmilega stórt hús með hárgreiðslustofu og bakarí innifalið. Hann byrjaði strax að æfa sig að greiða vinum sínum og er núna kominn með bronce. Hann las líka í bókum til að æfa sig að elda. Hann kynntist fullt af fólki en enginn varð raunverulegur vinur hans.

Svo kíkti ég í life wants og sá þar að hann vildi ná toppnum á education career (kennari). En vinnan var ekki auglýst strax svo hann fékk vinnu á lögfræðistofu. Hann hélt áfram að æfa sig og var orðinn nokkuð góður.Daginn eftir fann hann vinnuna og byrjaði að vinna á leikskóla. Hann kom heim og var kominn með „teachers aide“ eða fékk stöðuhækkun.
Honum var farið að langa í fjölskyldu og fór að daðra við þjónustukonuna. Hann bauð henni á date eftir að þau urðu ástfangin og allt gekk eins og í sögu. Þetta var dream date og daginn eftir flutti hún inn.

Hún hét Amy og var rauðhærð og bláeygð. Kvöldið eftir héldu þau party með vinum sínum en bara einn komst. Þetta varð nú ekkert sérstakt party og Amy fannst það rosalega leiðinlegt. Í veislunni trúlofuðu þau sig, eða 5 sek. eftir að veislan var búin. Um nóttina varð Amy ólétt.

Hún fann sér svo vinnu á sjúkrahúsi daginn eftir en var ekki ráðlagt að mæta fyrr en eftir að barnið væri fætt. John eignaðist vin í vinnunni og líf þeirra var nánast fullkomið.

Eftir bumbu númer tvö giftu þau sig , og buðu öllum sem þau þekktu, sem voru um 15 manns. Eða réttara sagt öllum sem þau höfðu sagt hæ við, því bara einn af þessu fólki var vinur þeirra, og það var vinur Johns úr vinnunni.

Svo sá ég að hann þurfti að eignast nokkra vini til að fá stöðuhækkun. Ég fór útúr fjölskyldunni og bjó til fjölskyldu með 4 konum og 4 köllum, til að vera vinir þeirra og flutti þau inn í hús sem var hliðina á húsi Roberts fjölskyldunnar. Ég man ekki alveg hvernig allir litu út eða neitt þannig svo ég sleppi því bara að segja frá þeim. Svo þegar nokkrir nágrannar komu í heimsókn kom Amy og stelpurnar fóru strax að tala við hana. Þær urðu fljótt vinkonur en ein sem hét Annika var í mestu sambandi við Amy. Svo fór ég aftur í Roberts fjölskylduna og gerði svo invite household og bauð strákunum að koma. John kynntist þeim og urðu þeir fljótt vinir.

Svo var komin helgi og enginn var í vinnunni. Þá fæddist barnið, eða börnin, þar sem þetta voru tvíburar. Strákur og stelpa, með brúnt hár og blá augu. Þau voru skírð Patricia og Michael.

John hringdi í Nanny og bað hana um að vera alltaf þegar hann er í vinunni , því það var svoldið mikið mál fyrir Amy að hugsa um þau bæði í einu, og sig sjálfa. Dagarnir liðu og börnin stækkuðu upp í toddler. Þá ákvað ég að sleppa bakarí og tók plássið fyrir það í tvö barnaherbergi handa krökkunum og einkabaðherbergi.

Eitthvað gerðist hjá konunni minni og allt í einu var hún komin uppí toppin í lækninum, hef ekki hugmynd um hvað gerðist. En svo komst ég ekki í vinunna þegar limman kom svo ég þurfti að hætta í vinnunni og núna er hún enn að bíða eftir að fá aftur vinnu á sjúkrahúsinu. John gerði eitthvað vitlaust í vinnunni svo hann var aftur sendur aftur niður á leikskólann.Um kvöldið varð Amy ólétt…

p.s. krakkarnir eiga eftir einn dag þangað til þau verða child, þau eru búin að læra á koppinn, labba og tala. Ég man ekki hvað Amy og John eru gömul.John fékk tvisvar stöðuhækkun svo hann er kominn upp í level 3, eða eitthvað þannig.


Framhald..
Lifðu lífinu með ró, þú kemst hvort eð er ekki lifandi frá því :D