Spears fjölskyldan Einu sinni bjó ég til sims-fjölskyldu, það var bara adult kall og kona sem hétu Britney og Mika(eftir frægafólkinu semsagt). Ég ætlaði bara að dunda mér bara við þau í rólegheitunum en það endaði með því að Britney eignaðist strák, sem var skírður Justin. Justin lærði allt, á koppinn, labba og tala og var algjert draumabarn, eins og í flestum sims-sögum. Svo leið tíminn og hann varð child. Þá varð Britney aftur ólétt og eignaðist tvíbura, stelpa og strákur, stelpan hét Paris en ég man ekki hvað ég skírði strákinn, enda hét hann algjeru bullnafni.
Svo urðu tvíburarnir child, Paris var með B- í einkun en bróðir hennar með A+. En smám saman hækkaði Paris í einkun og var komin upp í A þegar hún varð Teen. Þá voru foreldrar Justins og tvíburana orðnir gamlir og Justin orðin fullorðin.

Justin fékk bíl í afmælisgjöf frá foreldrum sínum og keypti sér sína eigin íbúð. Hann var orðinn leiður á að vera einn eftir tvo daga svo hann fór á blint stefnumót, það klúðraðist svo hann reyndi aftur daginn eftir. Þá fékk hann konu sem hét Klara Kiss. Það gekk allt mjög vel hjá þeim og Justin fékk sér vinnu og fljótlega áttu þau nóg fyrir nýju húsi. Það hús var stórt og reikningarnir voru í kringum 490 í hvert skipti. Að sjálfsögðu giftust þau, eftir að hafa trúlofast í litla húsinu. Í giftinguna var boðið öllum ættingjunum og tveimur æskuvinum Justins. Svo kom limma og sótti þau fyrir brúðkaupsferðina, þegar þau komu heim varð Klara ólétt og eignaðist barn stuttu seinna, það var strákur sem var skírður David. Stuttu eftir fæðinguna ætleiddu þau hvolp sem hét Pamella. Svo þegar David varð toddler var hann rosalega erfiður, hann öskraði ef hann var settur í barnastól, eða settur í barnarúm þegar hann var ekki þreyttur. Svo hann lærði ekki á koppinn en hann lærði að labba og tala. Þegar afmælið hans kom var haldin rosaleg veisla, og hann stækkaði upp í Child.
Justin var ekki lengur í vinnunni sinni svo reikningarnir tóku peningana af þeim smátt og smátt. Svo hann og Klara töluðu saman og ákváðu að flytja í aðeins minna hús. Daginn eftir fluttu þau, húsið var æðislega flott og David fékk lítið herbergi út á enda við hliðina á baðherberginu. Nokkrum dögum eftir flutninginn varð Klara ólétt aftur, hún eignaðist stelpu sem var skírð Marie. Marie var mjög stillt og yndisleg, öfugt við bróður sinn. Þegar hún varð Child fékk hún herbergi upp á lofti. Hún klæddist alltaf bleiku og átti stóran öskubuskukjól sem hún klæddist á táningsafmæli bróðir síns. En stuttu seinna varð hún sjálf unglingur, breyttist þá á svipstundu, fékk sér strípur í hárið, dimmrautt og svart, klæddist ermalausri skyrtu með laust bindi og víðum buxum og stalst út á nóttunni.
Justin var á toppnum í nýrri vinnu sem fótboltamaður með meira en 1000 í laun á hverjum degi, Klara vann heima, David gekk vel í skólanum, snaröfugt við systur sína, og Pamella var orðinn fullorðinn hundur, af tegundinni Chihuahua.
En einn daginn deyr Britney, mamma Justins, úr elli. Justin grætur mikið, öll fjölskyldan gerir það, sérstaklega pabbi hans.

Útlit:
Britney(ung): Rauðhærð með spennu, ljósasti húðliturinn og svört skirta og svartar kvartbuxur.
Britney(gömul):hvíthærð, í bleikri skirtu og gallabuxum.
Mika(ungur):
Ljóshærður með Elvis-hárgreiðslu í grárri íþróttapeysu og víðum buxum, ljóstasti húðlitur.
Mika(gamall):Hvíthærður með Elvis-greiðslu, hvítri skirtu og brúnu vesti og gallabuxum.
Justin:Ljóshærður með skiptingu, grænni peysu og gallabuxum, ljósasti húðlitur.
Paris:Ljóshærð með teygju í helmingnum af hárinu, bleikur bolur og bleikt pils, ljósasti húðlitur.
Bróðir Parisar:Ljóshærður með úfna hárgreiðslu, blá skirta og gallabuxur, ljósasti húðliturinn.
Klara Kiss:Brúnhærð, með stuttu klippuna sem fylgdi með Nightlife, sægrænn bolur og sægrænar kvartbuxur, ljósasti húðlitur.
David:Með sítt, brúnt hár, í víðri, blárri peysu og bláum buxum,ljósasti húðlitur.
Marie:Með dimmrautt hár í tígó(download) ermalaus skirta með laust bindi, víðar buxur, ljósasti húðlitur.

Myndin með er af Mika haldandi á Justin að verða toddler, Britney, mamman, er vinstra megin fyrir aftan og hægra megin er vinur hennar sem býr við hliðina á þeim.