Ég sendi þetta nú upprunalega á korkinn, en kannski er betra að pósta þessu svona þá fær þetta örugglega meiri athygli og ég get því séð skoðun ykkar á þessu máli betur :)

Finnst ykkur í lagi að hafa texta hér á ensku ?
Mér persónulega finnst skemmtilegra að hafa þetta á íslensku, ekki bara copy/paste frá öðrum simssíðum, frekar þá bara að senda inn linka á viðkomandi síðu og segja að þar sé áhugavert lesefni. Nú eða bara snara þessu yfir á íslensku :)
Mér finnst allaveganna ekki gaman að lesa svona copy/paste dæmi en hvað viljið þið ??

Simskveðja Alfons
-Song of carrot game-