Jæja, ég veit að mjög mörgum hefur sjálfsagt dottið þetta í hug, enda verið hægt að gera þetta í öllum Sims leikjunum svo ég geri ráð fyrir, fyrir mér þá byrjaði þetta allt saman þegar ég var leiður á að fá fólk heim til mín(þ.e.a.s. alltaf sama fólkið :) þá ákvað ég að reyna að losa mig við það. Það sem mig datt í hug það var jú að gera eitthvað svo hann deyji. Þá rann fyrir mig hugmyndin, ef hann er lokaður inni þá getur hann ekkert farið, líður illa og fær ekkert að borða. Þá bara kom hugmyndin, byggja vegg í kringum hann. Ég gerði það og áætlunin tókst, var laus við viðkomandi einstakling úr leiknum og þurfti ekki að hafa hann á vegi fyrir mér meir en til gamans var “gröf” eftir hann fyrir utan húsið mitt þar sem hann dó og þegar ég eyddi veggnum sem ég byggði í kringum hann gat ég látið kallinn minn syrgja hann við gröfina hvenær sem er.

Allavega þið sem hafið ekki prófað þetta, þið getið prófað þetta. Ég veit þetta er sjúkt, en samt, þegar maður er þreyttur á því sama er þá ekki alltaf gaman að prófa eitthvað öðruvísi?