Ég veit ekki með ykkur en ég virðist festast mikið í því að gera alltaf samskonar fjölskyldur.
Ég geri yfirleitt hjón með börn eða þá pör sem svo seinna meir eignast börn í leiknum. Svo hef ég nú reyndar líka gert svona herbergisfélaga, piparsvein og gamlt fólk en ég held nú að þar með sé það upptalið. Ferlega hugmyndasnautt eitthvað.
Ég hef nú samt velt fyrir mér að gera eitt hverfi með fjölskyldunni minni svona eins og hún er í raunveruleikanum ! Ég gæti trúað að það væri nokkuð fyndið. Hefur einhver af ykkur prufað það ?
Hvering er það með ykkur eru þið föst í einhverjum ákveðnum fjölskyldumynstrum eða eruð þið með einhverjar sniðugar “óhefðbundnar” fjölskyldur ?
-Song of carrot game-