Allison Carter

Ég gerði Allison Carter í creat a family en svo bættust við í fjölskylduna Clint Random, Beth Carter og Lydia Carter. Ég notaði ekki motherlode eða kaching í þessari fjölskyldu.

Allison Carter: Hún er með svart hár og dökk blá augu. Hún er í family aspiration og hennar life time want er “have 6 grandchildren”. Hún er í fiskunum og í slacker career.

Clint Random: Hann er með rautt hár og ljós brún augu. Hann er í family aspiration og hans life time want er “become the chief of the staff” í Culinary career. Hann er í bogamanninum og er í culinary career.

Beth Carter: Hún er með rautt hár og dökk blá augu og svo er hún steingeit

Lydia Carter: Hún er með ljóst hár og græn augu og svo er hún naut

Allison Carter flutti inn á litla lóð í Strangetown og kom sér vel fyrir. Hún byrjaði að vinna og allt gekk vel nema að það var ekki mikið um myndalega karla. Allison hringdi þá á matchmaking service og fékk sér blind date. Date-inn var Clint Random og áttu þau dream date saman og sama kvöld kom Clint með blóm til Allison. Allison var ástfanginn og hún gat ekki hætt að hugsa um Clint (hugsunar bólan þið vitið..). Eitt kvöld hringdi hún í hann og bað hann um að koma með sér á date. Hann kom yfir til Allison og þegar þau voru búinn að vera soltið lengi á date-inu þá heyrðist litla lagið sem vanalega heyrist frá rúmum, heita pottum og lyftum.

Allison byrjaði fljótt að æla og hún fékk frí í vinnunni þegar það var kominn bumba á hana. Svo tveim dögum eftir date-ið kom Clint inn á lóðina hjá Allison og gaf henni dans tæki(æ svona sem fylgir með nightlife). Svo átti Allison barnið og var það stúlkubarn sem var nefnt Beth Carter. Eftir að Allison átti barnið hringdi hún í Clint og bað hann að koma yfir til sín. Svo bað hún hann um að koma að búa hjá sér og hann sagði “ah gabashi mi sturulega” sem þýðir já. Clint kom með 34.000 peninga inn á heimilið og þá fluttu þau í annað og betra hús.

Svo kom að því að Beth varð toddler og Clint kenndi henni á koppinn en Allison að labba og tala. Clint fékk sér svo vinnu og honum gekk mjög vel í henni en gat þá ekki séð jafn mikið um Beth. Allison var núna komin með allar stöðuhækkanirnar og þau voru orðin mjög rík.Clint var líka kominn með nokkrar stöðuhækkanir og var með 400 og einh. á dag. Beth varð síðan child og það var haldin stór afmælisveisla og öllum í strangetown var boðið.

Beth fékk alltaf A+ í einkunn og vann einu sinni 100 simspeninga í verðlaun fyrir að vera dugleg. Svo eitt kvöld þá fór Clint og bað Allison að giftast sér og hún sagði auðvitað “ah gabashi mi sturulega” sem þýðir já. Svo næsta dag var haldin risa veisla og aftur var öllum strangetown búum boðið í partý. Þá langaði Clint í annað barn en ég nennti ekki að standa í óléttu vanlíðanum þannig ég lét þau ættleiða barn. Það kom stelpa sem hét Lydia Carter og var toodler.

Jæja þá er ég ekki kominn lengra með þessa fjölskyldu en það kemur
örugglega ekki framhald að því að ég er kominn með leið á þessari fjölskyldu.