Taylor's er ein af þeim fjölskyldum hjá mér í sims2 sem ætla sér mikið í lífinu.
Já en það byrjaði nú þannig að ég bjó til 2 háskólakrakka í University bænum. Þau skýrði ég Anne Cabot og David Manson. Ég flutti þau 2 saman inn í lítið hús í háskólabænum. Þau kynnust og urðu síðan saman sem kærustupar. Anne lærði að vera stærfræðingur og David buisness maður. Þau lærðu og lærðu og voru búin að taka fullt af prófum og voru með hærra en c+ í öllum þeim prófum. Þegar þau voru alveg að verða búin(áttu eftir að taka 2 próf) þá féllu þau bæði í einu prófi. Þá þurftu þau að taka það bara aftur ekki öll hin líka. Þau náðu prófinu þá, Anne fékk B+ og David A. Í seinasta prófinu fengu þau bæði A+. Þá voru þau nokkrar klukkustundir í university bænum enþá og síðan kom taxi að sækja þau og á útskrifuðustu þau. Þau fluttu í Pleasantview bæinn og fluttu í alveg eins hús og Brooke konan á, þar málaði ég húsið og gerði það flott og síðan héldu þau útskirftarveislu. 3 daga eftir það varð Anne ófrísk, þau eignuðust tvíbura(með engu svindli), 2 stelpur. Þær voru skýrðar Isabelle Rose og Christina Mary. Þá stofnaði David raftækjaverslun og hún gekk mjög vel. Þegar stelpurnar voru orðnar að child stelpum varð hún aftur ófrísk. Það varð þá strákur sem skýrður var síðan Thomas. Þegar hann var orðinn teenager og stelpurnar orðnar adult þá dóu konan og karlinn úr elli. Þegar þau voru bæði dáin fluttu stelpurnar út með kærustunum sínum og Thomas flutti með Christinu Mary og kærastanum hennar. Isabelle Rose var með kærasta sem var: Dökkbrúnn á litinn, brún augu, ljóst hár og hét Marino og Christina Mary átti kærasta sem leit svona út:ljós á litinn á litinn, blá augu, brúnt hár og hét Rick.
Þau fluttu í sitthvort húsið, hliðina á hvor öðru, Isabelle Rose og Marino smíðuðu hús en Christina Mary, Rick og Thomas fluttu bara í hús. Isabelle Rose og Marino eignuðust síðan eina litla stelpu sem skírð var Natalia þegar hún var orðin toddler giftust Isabelle Rose og Marino. Og Christina Mary og Rick giftust 5 dögum á eftir þeim. Síðan varð Thomas adult of flutti út hann eignaðist síðan kærustu sem hét Marissa hún var Ljóshærð, næst brúnust og með græn augu. Christina Mary og Rick eignuðust tvíbura, stelpu og strák þau voru skírð Anne og David eins og amma og afi. Síðan dóu Christina Mary og Isabelle Rose úr elli og Rick dó líka. Þegar þau dóu voru Anne og David toddler krakkar og Natalia orðin child. Marino tók tvíburana Anne og David að sér og þau bjuggu heima hjá honum og Natalia auðvitað líka. Síðan kom að því að Marino dó þá varð Natalia orðin teenager og Anne og David orðin child. Þá þurfti annaðhvort Thomas og Marissa að taka þau að sér eða Social Worker að taka þau. En Thomas og Marissa tóku þau að sér. Marissa varð síðan ófrísk og þau giftust með hún var ófrísk. Hún eignaðist síðan lítinn strák sem skírður var Daniel.
Núna í leiknum hjá mér eru Thomas og Marissa að fara að deyja eftir 3 daga bæði, Natalia er adult og flutt út, Anne og David búa hjá henni þau eru öll einstæð Anne og David eru að verða adult eftir 2 daga og Daniel býr enþá hjá mömmu sinni og pabba en þegar þau deyja ætla ég að láta hann flytja til Nataliu og Anne og David ætla að flytja út í húsið þar sem þa áttu heim fyrst. Daniel verður orðin að teenager þegar hann flytur til Nataliu og Anne og David ný orðin adult. En kannski kemur framhald ef ég nenni að skrifa það því þetta er svo langdregið.
Bíttu laust því bollan er mjúk :"D