Ok þetta er fyrsta sagan mín, ég vona að ykkur líki hún.

Mæðgurnar Faith og Dawn fluttu til Plesantview til að hefja nýtt líf. Faith fór að vinna við stjórnmál og Dawn byrjaði í unglingaskólanum í Plesantview. Þar kynntist hún t.d. Lilith og Angelu Plesant.

Nú var komið að því að Dawn færi í háskóla. Hún sóttist eftir styrkjum sem hún fékk svo flutti hún á heimavist í sim state háskólanum.
Hún ákvað að velja leikaranám.
Dawn hafði mjög gaman af náminu og naut hverrar kennslustundar.
Þegar hún var orðin annars árs nemi fluttu nokkrir vinir hennar inn á heimavistina. Þau Lilith og Angela Plesant, Dirk Dreamer og Dustin Brooke.
Dawn kynntist krökkunum á heimavistinni vel og líkaði sérstaklega vel við einn strákinn sem heitir Ron (ég gleymdi eftirnafninu hans). Þau urðu kærustupar.
Dawn hélt áfram að ganga vel í náminu og að lokum útskrifaðist hún með hæstu einkunn og heiðri.
Hún fluttist aftur til Plesantview.

Hún bað Ron að giftast sér sem hann gerði og þau héldu stóra brúðkaupsveislu þar sem öllum vinunum og fjölskyldunni var boðið.
Dawn byrjaði að vinna sem leikari og Ron gerðist atvinnu íþróttamaður.
Þau ákváðu að ættleiða frekar börn en að eiga sjálf. Fyrst eignuðust þau Kerie litla svarta stelpu.
Þá vantaði þeim stærra hús svo þau fluttu.
Þegar Kerie var orðin unglingur ættleiddu þau annað barn lítinn strák sem heitir Amin. Bæði Kerie og Anim komust inn í einkaskóla.
Dawn og Ron fengu nokkrar stöðuhækkanir í millitíðinni.
Þegar Kerie fór svo í háskóla ættleiddu Dawn og Ron svo þriðja barnið Jade sem var tekin af þeim stuttu seinna því hún stóð sig ekki nógu vel í skólanum.

Kerie flutti inn í hús (ekki heimavist) með stelpu sem heitir Sharon. Kerie og Sharon urðu svo kærustupar. Kerie skráði sig á listabraut og ætlaði að vinna sem kokkur í framtíðinni og Sharon skráði sig í bókmenntfræði. Þær ákváðu að stækka aðeins húsið sitt og leita að nýjum meðleigjendum.
Systurnar Margret og Christina Yang fluttu inn og einnig Amin bróðir Kerie sem var orðin unglingur og búinn að skrá sig í háskólann.
Þau héldu mikið af matarboðum og partýum og eignuðust marga góða vini.
Þegar Sharon og Kerie útrskrifuðust svo fluttu þær til Plesantview og keyptu sér hús. Kerie fékk strax vinnu sem kokkur. Sharon var hins vegar ekki komin með neina vinnu. Einn daginn þegar Kerie var í vinnunni bauð Sharon Amin í heimsókn. Þau enduðu saman upp í rúmmi og Sharon varð ófrísk eftir bróðir kærustu sinnar.
Þær ættleiddu líka Jade (sem Dawn og Ron höfðu ættleitt áður).
Svo fæddist sonurinn John. Þar sem Kerie og Sharon voru í opnu sambandi reyndi Kerie ekki mikið að komast af hver föður John væri.

Admin bjó svo áfram í húsinu með kærustunni sinni Margret og systir hennar Christinu. Þau eru öll að læra líffræði, erfðafræði og stærfræði og gékk bara vel síðast þegar ég kíkti inn til þeirra.
Svo er ég ekki komin lengra.
Þetta er stærsta fjölskylda sem ég hef búið til alls 4 ættliðir.
Góðar stelpur fara til himna,