Eins og allir þeir sem lásu fyrri greinina mína um Davis fjölskylduna þá eru Chris og Gretchen komin á þann tímapunkt að Gretchen er ólétt.
En fyrir þá sem ekki lásu greinina þá ætla ég að skrifa lýsingu á fjölskyldunni svo að þið skiljið þetta betur.

Chris:
Chris er rauðhærður með skegg og gleraugu.
Hann er fyrrverandi einstæður faðir og á tvær dætur einn, Jennifer og Summer sem hann átti með annarri konu. Hann flutti með dætrum sínum í Veronaville. Síðar kynntist hann Gretchen, þau giftust og eignuðust Gabrielle. Svo varð Gretchen aftur ólétt…

Gretchen:
Gretchen er líka rauðhærð eins og Chris, brún á hörund (samt ekki svertingi) með tvær fléttur og kúrekahatt.
Hún elskar börn eins og Chris og þau eru búin að ákveða saman að eignast mörg börn.

Jennifer:
Jennifer er líka rauðhærð eins og pabbi sinn en brúnni en hann eins og móðir sín. Hún er með krullað axlasítt hár.
Hún er unglingurinn á heimilinu og er eldri en Summer. Hún á kærasta, Tybalt Capp, á marga vini og er mjög vinsæl.

Summer:
Summer er með dökkt hár eins og mamma hennar hafði haft sem hún spennir aftur með silfraðri spennu. Hún er ljós á hörund eins og pabbi sinn.
Hún er krakki (child).

Gabrielle:
Hún er bara smábarn, með rautt hár eins og báðir foreldrarnir og ljós á hörund eins og pabbi sinn.
Hún er algjört krútt og allir á heimilinu leggja sig fram við að láta henni líða vel og gera allt fyrir hana. Hún er s.s. dekurbarnið á heimilinu.


Jæja, núna er komið við sögu þar sem Gretchen er ólétt á nýjan leik.
Chris og Gretchen bíða spennt eftir nýja krílinu og vona að það verði strákur.
Þau eru búin að ákveða að skíra barnið Lucas ef það verður strákur og Jamie ef það verður stelpa.
Síðan kom það öllum á óvart að Chris verður óléttur líka! Þau eru furðu lostinn og vita varla við hverju á að búast þegar bumban á Chris stækkar á óvenjulega miklum hraða og verður fljótt jafnstór og bumban á Gretchen.
Stuttu síðar fá Grethen og Chris hríðir á sama tíma…
Gretchen verður fyrri til og fæðir að lokum litið stúlkubarn sem þau skíra Jamie.
Síðan verða allir undrandi þegar hún fær aftur hríðir og fæðir aðra stúlku!
Þau ákveða að skíra hana Jessicu. Svo fæðir Chris sitt barn sem reynist einnig vera stúlka. Þau skíra hana Jesse.
Þau voru auðvitað vonsvikin að hafa ekki eignast strák og sitja nú uppi með sex stúlkur en láta ekkert á því bera.
Þau fá sérstakan stílista til að byggja viðbyggingu við húsið fyrir öll litlu krílin. Stílistinn innréttir húsið með öllum nauðsynjum sem lítil börn þurfa.
Hann gerir sérstakt herbergi fyrir stúlkurnar til að sofa í með þremur bleikum rimlarúmum og dúnmjúkum bleikum teppum fyrir framan hvert rúm.
Frammi er lítið eldhús með þremur bleikum barnastólum, bleikum ísskáp og ruslafötiu. Síðan er baðherbergið með þremur litlum koppum og ruslafötu.
Stílistinn gerði líka sérstakt leikhorn með stóru teppi og fullt af leikföngum.
Síðan bætti hann við tveimur sófum fyrir foreldrana til að leggja sig í og fylgjast með börnunum og að lokum málaði hann allt bleikt og teppalagði allt gólfið.
Jesse, Jessica og Jamie undu sér vel þar og stækkuðu ört.
Chris fékk hverja stöðuhækkunina á fætur annarri og safnaði stigum til að ganga vel í starfi og ná markmiði sínu og verða Criminal mastermind.
Jessie, Jamie og Jessica urðu fljótt smábörn og Jennifer, Gretchen og Chris kenndu þeim að tala og ganga.
Gabrielle varð krakki en ekki var haldin nein veisla fyrir hana. Bara fjölskyldan.
Hún var með stuttklippt rautt hár og frítt andlit.
Svo var haldið upp á afmæli Jessie, Jamie, Jessicu og Summer með prompi og prakt uppí á stóru svölunum fyrir ofan stelpuherbergið.
Þá var Tybalt Capp og Puck Summerdream boðið í veisluna.
Jessie, Jamie og Jessica voru fyrstar og allir fögnuðu þegar þær blésu á kertin og urðu krakkar (children).
Þær fengu allar sömu hárgeiðsluna eins og Gabrielle var með en þær skiptu um hárgreiðslu og Jamie og Jessica fengu sér báðar tíkarspena og Jesse fékk fléttur eins og mamma sín.
Þá var fenginn stílisti til að innrétta herbergi stelpnanna uppá nýtt og hann skipi út öllu smábarnadótinu og gjörbreytti herberginu þeirra í krakkaherbergi.
Jennifer og Summer gekk mjög vel í skólanum og sömuleiðis Gabrielle og þær fengu allar A+
Jamie, Jessica og Jesse voru aðeins á eftir með B+ en þeim gekk sífellt betur og betur.
Summer er nýbúin að kynnast Neil Lawson sem er unglingur eins og hún. Hann er svartur á hörund með svart strítt hár og dökkblá augu…eins og allir hinir í Davis fjölskyldunni.
Gretchen hitti líka Mike Lawrence á dögunum þegar Chris var að vinna og þau heilluðust algjörlega af hvort öðru…Gretchen kyssti hann þegar Gabrielle sá til og núna forðast hún að hitta hann eins og heitann eldinn af ótta við að sundra fjölskyldunni.
Núna er Jennifer bráðum að verða fullorðin og ætlar þá að flytja út með Tybalt og stofna sína eigin fjölskyldu.
Gretchen og Chris ætla að eignast annað barn um leið og Jennifer flytur út og vona að það verði strákur svo að hann geti viðhaldið ættarnafninu…Davis.
Ef það verður ekki strákur þá bíða þau bara þartil Summer flytur út og reyna aftur og aftur…það er planið. Ég er nefnilega að reyna að stofna heila ætt =D