Chris Davis ákvað að flytja í Veronaville með dætrunum sínum, Jennifer og Summer.
Chris var rauðhærður með gleraugu og skegg og mjög grannvaxinn maður. Jennifer líktist honum að því leiti til að hún var líka rauðhærð með krullað hár og með brúna húð eins og móðir sín hafði verið.
Summer hinsvegar var með stuttklippt brúnt hár eins og móðir sín, en var ljós á hörund eins og pabbi sinn.
Þau fluttu í rúmgott hús norðan við Veronaville. Chris fékk starf sem þjófur og gekk vel í því starfi.
Jennifer eignaðist marga vini og var nýbyrjuð að taka eftir strákum. Svo þegar Tybalt Capp gekk framhjá, heillaðist hún alveg.
Hún og Tybalt urðu fljótt vinir og byrjuðu svo saman.
Chris hinsvegar langaði að eignast barn og var því að leita sér að félaga. Hann kynntist Gretchen Gray einn daginn og þau byrjuðu að deita.
Gretchen var rauðhærð eins og Chris og var með brúna húð.
Chris heillaði Gretchen uppúr skónum með rauða hárinu og yfirvaraskegginu og þau kysstust strax á fyrsta stefnumóti.
Hann bauð Gretchen að flytja inn og hún þáði það með þökkum.
Summer og Jennifer líkaði vel við Gretchen og ekkert var því til fyrirstöðu að Chris og Gretchen myndu trúlofast.
Þau trúlofuðust og um nóttina varð Gretchen ólétt.
Nokkrum dögum síðar eignuðust Chris og Gretchen sitt fyrsta barn sem þau skírðu Gabrielle.
Gabrielle var rauðhærð eins og báðir foreldrarnir og líktist móður sinni.
Gabrielle var hvers manns hugljúfi og öllum þótti vænt um hana.
Jennifer kenndi henni að ganga og tala og sá um hana þegar Chris og Gretchen voru upptekin.
Gretchen ákvað að vera heimavinnandi móðir og hugsa um börnin sín því að hún og Chris höfðu bæði ákveðið að eignast mörg börn.
Gretchen varð strax aftur ólétt og Chris og hún voru himinlifandi, þau vona að það verði strákur.

Þau eru enn að bíða spennt eftir næsta barni og svo kemur í ljós hvort að það verði stelpa eða strákur :)

PS: Ég var búin að bíða svo lengi eftir nýrri sögu hingað inná sims að ég sendi bara inn sögu sjálf í staðinn. Koma svo allir!! Sendið inn sögur affjölskyldunum ykkar í sims! =D