Ég vildi alltaf verða frægur. Ég vildi að allir vissu hver ég væri þegar ég færi niður í bæ. Á endanum fékk ég það sem ég vildi. Ég varð frægur, mjög frægur. Enginn truflaði mig. Ég réði öllu en missti líka allt.

Ég var einkabarn foreldra minna, Isadora og Justus Legacy. Alveg síðan ég man eftir mér, var ég að læra nýja og nýja hluti. Áður en ég varð unglingur var ég með yfir 8 í öllum skillum (nema body)… Ég átti góða æsku, nóg af vinum og mig skorti ekkert. Foreldrar mínir voru þó lítið til staðar. Mamma var Professional Party Guest og pabbi var General í hernum.

Fljótlega eftir að ég varð unglingur, áttaði ég mig á því að ég væri hrifin af stelpum. Ég hóf að fara á stefnumót, fyrst með Vicki, síðan Autumn… Victoria…Hannah…Holly og áfram hélt listinn. Þetta var lífið, átti nóg af kærustum, yfir 9 í öllum skillum og með A í skóla.

Ég varð fljótt fullorðinn og foreldrar mínir sögðu að það væri kominn tími til að ég fyndi mér eiginkonu. Það tók sinn tíma en á endanum varð ég ástfanginn… við fórum oft á stefnumót og allt gekk vel. Gifting okkar var yndisleg og fljótlega eftir eignuðumst við litla stelpu Madison.

Ég var svo hamingjusamur en samt fannst mér eitthvað vanta, ég vildi verða frægur. Ég vildi ekki verða eins og foreldrar mínir, ég vildi eitthvað meira.

Kvöld eitt fór ég einn í bæinn. Á barnum hitti ég mann, en hann var eitthvað öðruvísi. Við urðum samt góðir vinir, hann hafði þó skrýtna venju að vilja aðeins hitta mig á kvöldin… alltaf eftir 19 og var alltaf farinn fyrir 6… en ég spáði ekkert í því, hann var vinur minn.

Eitt kvöldið bað hann að hitta mig… þegar ég mætti honum, stökk hann á mig… mér leið mjög undarlega… og allt í einu myrkur. Ég rankaði við mér stuttu seinna, hann var farinn. Ég stökk upp í leigubíl og flýtti mér heim.

Konan mín öskraði er hún sá mig…HVAÐ GERÐIRÐU!! HVAÐ GERÐIRÐU!! Hún varð móðursjúk…

Næstu daga leið mér mjög illa, ég vildi bara sofa og kom ekkert fram nema eftir 19… Konan mín fór frá mér… sagðist ekki geta búið lengur með mér…. Nú er hún farin ásamt dóttur okkar Madison.

Ég sit hér einn, enga vini, búinn að missa vinnuna… ég þoli ekki dagsljósið, ég sef í kistu, ég bít annan fólk og breyti þeim…
Hvað er ég?



Ég er VAMPÍRA!