Crock Ég vil vekja athygli á því að gæðin á myndunum mínum í SiMs 2 eru ekki mjög góð.


Crock

Natasha Crock flutti í hús á tvem hæðum ástam dóttur sinni, Angelu Crock í bænum Skönköping. Þær komu sér vel fyrir í þessu tvegja hæða húsi sem var með eina stofu, tvö baðherbergi (eitt niðri og eitt uppi), eldhúsi og þrem herbergjum á efri hæðinni en eitt þeirra var notað sem gestaherbergi.
Natasha var með ljóst hár og var rosa falleg móðir. Angela var ljóshærð eins og mamma sín og var mjög góð unglingsstúlka. Hún var dugleg við að hjálpa mömmu sinni að þrífa.

Natasha kynntist brátt konu að nafni July Trade og urðu þær bestu vinkonur. Angela eignaðist tvær vinkonur en önnur hér Dakota Terberd og hin Sharky Pristons.

Natasha vildi verða læknir og fékk sér því vinnu á sjúkrahúsinu. Hún byrjaði í sjúkrabíl en þar sem hún sýndi starfinu miklu áhuga þá færðist hún alltaf hærra og hærra í starfi.
Angela var mjög dugleg í skólanum og náði ágætum einkunum. Hún hitti vinkonur sínar mikið og vann alltaf heimanámið sitt.
Natasha og Angela voru mjög nánar og hjálpuðust mikið við heima.

Einn daginn kynntist Angela strák sem hét Chris Ben Eweth. Ef að hún kynntist honum fór hún oft að lauma sér út á nóttinni með honum. Þau urðu fljótt góðir vinir og það var komið upp í vana að Angela laumaðist út. Eitt kvöldið bauð hún honum heim til sín og kynnti hann fyrir Natöshu. Natöshu leist vel á hann og Angela og Chris fóru eitthvað að leika sér. Þau fóru í heita pottinn og svo fóru þau að tala saman. Það endaði með því að Angela kyssti hann og þau byrjuðu saman.
Eftir þetta fór Angela að laumast miklu meira út með honum og einu sinni náði löggan henni. Natasha skammaði hana og Angela fór ekki út næstu tvo daga. Á þessum tvem dögum kynntist hún Luke Revon. Hún fór að laumast út með honum og bauð honum svo heim til sín. Þar fór hún að daðra við hann og kyssti hann að lokum. Þetta samband verð miklu grófara heldur en með Chris. Þau Luke kysstust hvar sem er og eiginlega alltaf og hann gisti hjá henni eina nótt. Þau sváfu reyndar ekki í sama rúminu.

Natöshu var farið að ganga mjög vel í vinnunni og komin mjög langt. Fékk oft launahækkun og stöðuhækkun.
Annað var hins vegar að segja frá Angelu en þessi ástarsambönd hennar höfðu mjög mikil áhrif á skólanámið. Ekki bætti úr að hún var síðar ástfangin af Saluk Eweth en hann var bróðir Chris.
Hún var núna með þrem strákum en oftast þó með Saluk.

Natasha kynntist manni að nafni Brian Olsen en hann var meðeigandi Mischu Eweth sem var móðir bræðrana Chris og Saluk. En ásamt þeim bjó líka Ridge Revon og Luke Revon og svo bróðir Mischu sem hét …… Eweth sem átti dóttur að nafni ……. Eweth.

Natasha og Brian urðu miklir vinir og töluðu oft í síma. Að lokum bauð hún honum heim og þau borðuðu saman. Um kvöldið kyssti Natasha hann og þau fóru að kyssast og fóru svo upp í rúm og Brian gisti um nóttina.
Angela hafði verið með Chris, Luke og Saluk og var komin með einn í einkunn.
En einn daginn hafði hún ákveðið sig en hún bar mestar tilfinningar til Saluk. Hún hélt party og bauð öllum vinum sínum og játaði ást ´sina þar á Saluk en hún missti Luke og Chris sem vini.

Tvem dögum eftir þetta fór Angela í háskóla ásamt Saluk og lifa þau nú saman þar í stórglæsilegu húsi.

Af Nathösu er að segja að hún bauð Brian að flytja inn til sín og einum dag eftir það bað hann henni að giftast sér. Hún svaraði játandi og nokkrum dögum síðar eftir að Brian hafði líka fengið sér vinnu á veitingahúsi, giftu þau sig.
Eftir brúðkaupsferðina varð Nathasa ólétt og þrem dögum síðar fæddi hún strák að nafni Lucas.
Þau lifa hamingjösöm saman og eiga fullt af vinum. Natasha er orðin góð vinkona Saluks og tengslin á milli hennar og Angelu hafa aldrei verið sterkari. Auk þess hefur Angela tekið Brian í sátt og eru þau mjög góðir vinir.

Það kemur framhald bæði af Nathösu og Angelu og fjölskyldum þeirra.