Eitt sinn bjó ég til fjölskyldu í sims 2. Það voru Mark og Sandra sem fluttu í lítið hús á einni hæð með Söshu unglingnum þeirra. Þau voru frekar fátæk þannig að þau leituðu sér bæði að vinnu. Mark fann sér eina góða en Sandra og Sasha voru einar heima. Söshu gekk mjög vel í skólanum og fékk bara A+. Svo kom sá ddagur í lífi þeirra að Sandra varð ólétt. Þá fór Mark að leita sér að aukavinnu til að fá smá aukatekjur fyrir heimilið. Nú var hann bara heima til að borða og sofa og fara í sturtu og Mark og Sandra uxu smátt og smátt í sundur með tímanum vegna þess hversu mikið hann vann. Sandra var komin á steypirinn og lá bara uppí rúmi og borðaði ruslfæð af bestu gerð. Heimilið var orðið ein ruslahrúga og Sasha þurfti að vera allan daginn að vera að þrífa. Einkunnirnar hennar héldu samt áfram að vera tiptop þrátt fyrir að hún var upptekin alla daga að þrífa og elda mat fyrir mömmu sína og það allt. Hún hafði engan tíma fyrir sig og komst næstum aldrei í bað. Loks kom barnið og það var lítil dökkhærð stelpa sem þau skírðu Alexu. Alexa og Sasha deildu herbergi og Sandra fór aftur að vinna hálfan dag eða eftir að Sasha var búin í skólanum. Mark hætti í annari vinnunni sinni til að vera meira heima með fjölskyldunni. Sasha og Alexa urðu strax bestu vinkonur enda þurfti hún að sjá um að hugga hana um miðja nótt,gefa henni að borða,baða hana og kenna henni að labba og pissa í kopp. Einn daginn kom sasha með sér heim strák að nafni Patrick. Sandra var komin í vinnuna og Mark sofandi eftir að hafa verið að vinna alla nóttina. Patrick og Sasha höfði verið að spjalla svolítið á netinu og orðið góðir vinir. Alexa var sofandi með pabba sínum í sófanum. Sasha og Patrick lögðust upp í rúmið hennar. Þar lágu þau nokkra stund að kyssast og kela en þá var klukkutími í að mamma hennar kæmi heim þannig að Patrick fór heim.Sasha byrjaði að elda og taka til og maturinn var til akkúrat þegar Sandra kom heim og feðginin vöknuðu við ilminn af matnum. eftir mat fór SAsha með Alexu í bað en á meðan læddust Mark og Sandra inn í svefnherbergi og lágu þar í faðmlögum. Allt í einu stekkur Mark upp úr rúminu og tekur Söndru upp og lætur hana á gólfið og biður hana um að giftast sér. hún segir já og þau fara fram til Söshu og Alexu og segja þeim fréttirnar. Allir verða rosa glaðir og sitja öll saman fyrir framan sjónvarpið. brátt sofnar alexa í sófanum og Sasha heldur á henni inn í rúm og fer sjálf að sofa.



Kemur meira í næstu viku. :)