Ég bjó til mann sem hét Jason Jackson ásamt vinkonu minni!!!

Hann byrjaði að fá frábært hús með öllum þægindum, innisundlaug, útisunlaug, leikherbergi, líkamsræktasal o.s.f.
Og honum fannst húsið vera frekar flott og hann naut þess að búa í þessu frábæra húsi!!!!

Þá komu nágrannar og heilsuðu upp á hann og þar á meðal Susana Scott!!! Þau byrjuðu á því að chata saman og allt í einu var sambandið orðið dýpra og Jason fór að reyna við hana!!!!

Þau fóru eitthvað þarna að daðra(flirt) við hvort annað og þá var kominn kostur á að kyssast!
Susana vildi það ekki sem er frekar skrýtið af því að þeim kom svo vel saman.

Eftir þetta voru þau svona að hittast af og til þegar Susana samþykkti að vera nóttina hjá Jason!
Susana varð ástfangin af honum og þau voru eitthvað að knúsast uppi í rúmi þegar Susana vildi bara fara!

Hún fór og þá var þessi nótt eyðilögð!
En samt flutti hún inn en það gekk ekki af því að hún Susana var gift og átti tvíbura og vildi alls ekki eignast barn með Jason af því að hún var með ástarmarkmið!

Næsta dag hringdi Jason í þjónustustúlku (maid) (með svarta hárið) og Jason gaf henni þjórfé (Tip). Þá urðu þau vinir, annað leiddi af öðru og áður en þau vissu af voru þau að fara að gera woo hoo! Þau hittust svo aftur og þá flutti hún inn! Þau gerðu svo einu sinni Try for baby í tilefni af því að þau eru nánari núna!!!

Hún ældi ekkert og við héldum að hún væri bara ekkert ólétt! Þess vegna bað Jason hana um að giftast sér!

Hún sagði já og um leið þá stækkaði maginn!
Hún var ólétt!!!


Þarna nákvæmlega kom mamma (mín) og sagði okkur að hætta í tölvunni þannig að við hættum!!!
Þau giftast á morgun og líklegast kemur barnið í dag! (á sims tíma)

Takk fyrir að lesa :):):)
….