Þannig er nú mál með vexti að þessi ruglingslega fjölskylda er alger óreiða! “Whata mess!”! en nú er komið framhald af þessari æsi spennandi fjölskyldu en ég veit að hún heitir annað en þetta passaði bara betur, fannst mér:)

Fyrir þá sem ekki hafa lesið fyrri söguna þá er það nú þannig að Tess Tech, geimvera, fór útí geiminn, með svindlinu boolprop testingcheatsenabled true, og varð ólétt. Hún eignaðist geimveru stelpu en svo kynntist hún Pascal Courios, er í leiknum, en þau voru bara vinir og hann flutti inn, en þá var hann óléttur eftir geimveru og hann fæddi stuttu síðar geimveruson. En stelpan hennar Tess og strákurinn hans Pascals voru systikini úr því að Tess og Pascal urðu ólétt eftir sömu geimveruna en Pascal og stelpan eru ekkert skyld og Tess og strákurinn eru ekkert skyld, svo hvernig gengur þetta allt saman upp? “Find Out!”

Nú byrjar sagan. Léttast til að skylja þetta allt saman væri bara að lesa hina söguna:) en hér byrjar þetta! “Have fun!”

Venus og Polliana stækka mjög fljótt, með svindlum, og verða að fullorðnu fólki áður en hendi væri veifað!

Svo kemur að því að Polliana og Pascal byrja að vera eitthvað saman. Svo kemur stóra stundin upp að Polliana fær sinn fyrsta og langþráða “First Kiss”!

Eftir kossinn fer Pascal að reyna við hana og klípurí rassinn á henni og svona en hún hlær bara, híhíhí. Svo fer Pascal í rúmið að lesa en Polliana vill meira en bara koss og smá klíp! Svo hún eltir hann og leggst hjá honum. Kyssir hann með tungu og ræðst á hann og kyssir! Og svo vill hann einnig smá meira og kúrir aðeins svona smá en svo fer eitthvað að gerast undir sænginni!

En nú skulum við sjá með Venus og Tess!

Tess kyssir hann blíðlega og fer svo í smá kelerí og kyssir hann hér og þar og alsstaðar!og svo kemur smá knús, svona rómantískt. En þá er Tess orðin svo svakalega hrifin af Venus að hún fer í heitapottinn og hann eltir með lafandi tungu! Eins og hún hafði ætlast til! “Allt samkvæmt áætlun!” hugsar hún með sér;). Svo í pottinum skvetta þau eins og smákrakkar á hvert annað en fara svo og kissast rólega, mjúkur, blautur og rómantískur koss:)! En svo fer eitthvað að gerast! Þau fara að gera smá “WooHoo” á almanna færi eða í heitapottinum, úti!

—–

“Þá hafa allir á þessu heimili fengið sitt “First Time” og sinn fyrsta koss. Sjáum hvað gerist næst, allt er nú að gerast!:)”

—–

En svo kom að því að Tess varð.. Ófrísk! En það fyndnasta er að Polliana varð líka ófrísk, á sama tíma! En svo kom að því að þær áttu að fara að eiga!! Og þá kom í ljós að Polliana eignaðist stelpu, venjulega en með geimveruaugu;), og Tess eignaðist líka stelpu, geimveru með geimveruaugu, !

En þetta er nú allt svo skondið að ættartréð ruglaðist alveg! Tess og Pascal voru strax orðin amma og afi! Og allt fór í Err-U-Ge-Ell!!! Rugl!

En endir í þetta skiptið:)