Hérna er sagan af Aniston fjölskyldunni sem ég er reyndar hætt að spila með vegna þess að hún er næstum útdauð…
En hér kemur hún:

Ég bjó fyrst til konu sem hér Anny Aniston. Hún flutti í hús í stærri kantinum í Srangetown. Hún fékk vinnu sem Career Track en ég veit ekki hvað það er :@ Nokkru seinna kynntist hún manni sem hér Johnson. Hann var næstum alveg svartur og Anny líkaði vel við hann. Þau kynntust betur og urðu skotið í hvort öðru ( Bleikt hjarta )

Anny bauð honum í heimókn á hverjum degi og bað hann um að vera yfir nóttina í hvert skipti en hann neitaði alltaf og hún fór að gráta í hvert skipti enda var hún voðalega ástfangið af honum.
Einn daginn, nokkrum dögum seinna, þegar hún var orðin yfir sig ástfangin af honum bað hún hann að flytja inn og hann játaði. Hann flutti inn með 2000 sims-peninga og þau notuðu peningana í betir húsgögn og smá “inprovement” ( Held það sé skrifað svona. Johnson vann sem fótboltaþjálfari en Anny var rekin því hún skrópaði í vinnuna svo oft…

Nokkrum dögum seinna bað Anny Johnson um að trúlofast sér og hann neitaði en þegar hún var búin að kyssa hann allan daginn og gera flirt og allskonar þangað til þau voru bæði ástfangin
( Rautt hjarta ) Bað hún hans aftur og þau trúlofuðust og giftust daginn eftir.

Um kvöldið gerðu þau “ WooHoo ” í fyrsta skipti og ég náði því á video ;) Strax og þau voru vöknuð gerðu þau “ Try For Baby ” og það heppnaðist.

Anny gubbaði ekkert en svaf og svaf og Johnson talaði helling við bumbuna á henni og það voru teknar milljón óléttumyndir. Svo fékk Anny hríðir og eignaðist stelpu sem var skírð Kathleen. Náði því líka á myndband ;)

Þeim gekk hryllilega og Johnson fór alltaf þreyttur í vinnuna og einn daginn þegar hann kom heim úr vinnunni var Grim kominn og reyndi að drepa Anny en hún komst aldrei að borða út af Kathleen sem var orðin Toddler. Johnson bjargaði henni frá dauðum!!!

Þegar Kathleen var orðin eldri toddler varð Anny aftur ólétt og eignaðist seinna aðra stelpu ,þegar Kathleen var orðin krakki, sem hét Sarah og var dökk eins og pabbi sinn
(Kathleen var ljós en smá brún eins og mamma sín)

Meðan Sarah var lítil kom Grim aftur en Kathleen bjargaði Anny ,en hún var orðin unglingur og “grow up well” . Það leið yfir Kathleen og Anny var rosalega áhyggjufull en Kathleen vaknaði klukkutíma seinna og fór að sofa. Rétt áður en það varð dimmt datt Johnson niður dauður fyrir framan barnarúmið en Sarah var í því, orðin Toddler. Þær grétu helling og ákváðu að flytja í stærra hús og gerðu það. Þá var Anny orðin ólétt í þriðja skipti. Um kvöldið datt Anny niður í eldhúsinu og Grim kom í þriðja skipti en Kathleen náði ekki að bjarga henni og Anny dó ólétt :(

2 dögum seinna var haldin stór afmælisveilsa fyrir Söruh en hún varð ekki krakki fyr en einum degi seinna því Kathleen kenndi henni að tala á síðustu stundu en hún varð krakki daginn eftir að hún lærði að tala hjá nanny því Kathleen var í skólanum. Þær fluttu aftur í risastórt og flott hús og ég svindlaði pening svo þær gætu borgað skatta og keypt mat því þær voru báðar í skóla og gátu ekki unnið því Sarah var of lítil og Kathleen þurfti að elda mat fyrir Söruh og sjá
um hana og læra heima á fullu því hún var komin með F í einkunn.


Þarna hætti ég að nenna að spila þessa fjölskyldu en báðir foreldrarnir voru dauðir.
Ég er núna komin með aðra fjölskyldu en ég byrjaði með bæði kall og konu, Anny og Jack Aniston en núna er Anny ólétt og ég passa rosa vel upp á að þau séu í góðu mood-i og að þau deyji ekki :)
just sayin'