Fyrst það gamla svo það nýja;)

—–

Peter Gissoff hét unglingsstrákur nokkur í bænum StrangeTown í SimsLandi hitti Corniliu Faranco í skólanum StrangeSchool. Hún kom með honum heim einu sinni og þau lærðu saman. Svo fóru þau að tala og smám saman urðu þau bestu vinir. Peter og Cornilia byrjuðu á föstu stutt eftir að þau urðu best friends.

—–

Svo þegar að hann stækkaði og varð fullorðinn var hún enn þá unglingur svo ég fór í hennar fjölskyldu og lét hana verða fullorðin. Svo aftur Gissoff!

—–

Svo loksins þegar að þau voru bæði fullorðin þá lét ég þau trúlofast! Og svo eftir tveggja daga trúlofun giftust þau og hún flutti inn!

—–

Og strax eftir giftingu fóru þau uppí herbergi og hún varð ólétt. Eftir svo þriggja daga meðgöngu og svona 10 ælu-atriði! Þá fæddist lítil telpa! Og hún hét Americus! Og svo þegar hún varð toodler þá fóru Peter og Cornilia aftur uppí rúm og hún varð aftur ólétt. Svo eftir sex daga meðgöngur alltí allt og eftir svona 20 álu-atriði! Þá fæddist lítil telpa! Og hún hét Patricka! Og þegar að hún varð toodler þá fóru þau uppí rúm.. aftur! Og hún varð ólétt.. aftur! Og eftir níu daga meðgöngur alltí allt þá fæddist telpa og telpa! Og þær hétu Laura Ann og Jessie!

—–

Jæja.. núna voru þau svo hætt að eignast börn því að þetta vor komið full mikið! Fjórar telpur! En meira um þær í framhaldinu! Sem á eftir að koma.. vonandi:D

—–

FRAMHALDIÐ!!!

—–

Americus hitti strák sem var á sama aldri og hún þegar þau voru fullorðin því hún hitti hann ekki fyrr en þá. Hann hét Carlos. Svo urðu þau nánari og þá trúlofuðust þau! Svo eftir eins dags trúlofun þá giftust þau! En þau giftust heima hjá Americus svo að ættarnafnið hélt áfram. Og svo eigilega strax eftir giftingu fóru þau uppí rúm og gerðu “WooHoo” eða “Try For A Baby” og hún varð ólétt! Svo eftir þriggja daga meðgöngu og um 10 ælu-atriði! Fæddist lítil telpa! Og hún hét Corny Gissoff!

—–

Svo núna förum við og skoðum sögu Patricku! En ég notaði svindlið sem Chihuahua sagði hér á huga.. svindlið boolProp testingCheatsEnabled true notaði ég bara á Patricku.

—–

Patricka var svo óheppin með stráka að hún eignaðist barn með geimveru (svindlið). Svo eftir þriggja daga meðgöngu og um 10 ælu-atriði (reyndar sex daga meðgöngu og um 20 ælu-atriði alltí allt)! Fæddist.. lítil telpa! Hvað annað! En hún hét Tess Tech Gissoff!

—–

Svo förum við og skoðum Laura Ann líf! Ég notaði ekkert svindl á hana.

—–

Laura Ann var með markmiðið að vita mikið. Og svo seinna þá kom það upp að henni langaði í barn. En því miður þá átti hún engan mann til að eignast með svo að hún ættleiddi. Hún ættleiddi einn toodler og það var telpa! Eins og vanalega;) En hún hét Alexa Fung. Þegar hún varð unglingur þá hljóp hún á brott og fór.

—–

Svo, loksins!, förum við yfir til Jessie!

—–

Jessie var aðal gæran í bænum (allir unglingsstrákarnir voru með henni og hún var ástfangin af þeim öllum) (svo fer ég og leik eina fjölskylduna sem einn strákanna er í og læt hann verða fullorðinn svo þau geta verið saman, Ripp) og þegar hún var bara nýorðin fullorðin varð hún ólétt. Og þá fæddist Jamie. Það var telpa. En eftir barnsbuðinn og allt það þá hætti hún með Ripp.

—–

Kannski kemur framhald. Held samt ekki:)