FRAMHALD AF HUFF! [ATH! Mjög ruglingslegt!]

Teck, Kunn Merlin og Tedu Funn eignuðust allir börn með geimverum eða úr sjónaukanum. Þau voru geimveru börn auðvitað.

En Jane #934RT og Poko-Fann #581# eignuðust engin börn. Þær voru einstæðar og áttu heima í sama húsi.

En Teck skýrði strákinn sinn Hack-Honn #3127KJF. Kunn Merlin skýrði stelpuna sína MellieSeven#0486592339 (sem var tekin frá þeim þegar hún varð stelpa) og hann Tedu Funn skýrði stelpuna sína Poko Chichi Fang 5Jun6 og strákinn sinn Hangong Stuart Scott #6691827#.

Tedufann var orðinn afi fjórum sinnum. En núna er Huff fjölskyldan orðin frekar geimveruleg;)

Strákar þeirra Tedufann og Melkorck #21# Jane Funn #9116 Tech áttu allir heima saman með börnum sínum. Og þau, Tedufann og Melkorck #21# Jane Funn #9116 Tech áttu heima saman og dætur þeirra saman.

En Hangong Stuart Scott #6691827# flutti að heimann. Hann hitti stelpu sem var hvít og hét Laura. Þau giftust seinna og eignuðust barn. Það var stelpa og var geimvera.. eins og vanalega. Hún hét Tempu-Taku Sinem #1004933149. Þegar hún varð stór giftist hún ríkum manni og þau ættleiddu MellieSeven#0486592339.

MellieSeven#0486592339 var dekruð lítil stelpa. Hún erfði allt sem foreldrar hennar áttu þegar að móðir hennar fór í fangelsi og faðir hennar brann. Hún giftist manni sem var frekar ljótur, hann hét Ajay, og hún var alltaf að rífast við hann en þau eignuðust aldrei barn svo þau ættleiddu. Það var hvít stelpa sem hét Marlyn Alexandra Chi Chi Hu. Hún var aftur tekin af þeim og þegar hún var aðeins toodler. Þau skildu svo seinna.

Svo nennti ég ekki að leika þessa fjölskyldu meira og ég fór í Huff en bara að leika Poko Chichi 5Jun6. Hún eignaðist strák sem hét Kalvin Hong Jae 555546145#. Þegar að hann varð stór þá ættleiddi hann Marlyn Alexandra Chi Chi Hu. Og þegar að hún varð stór þá giftist hún Ajay!

En þá, þegar þau fóru að búa, þá tóku geimverur Ajay (því að hann var í sjónaukanum) og það var skilað honum óléttum. Þannig að þau eiginlega eða hún aðalega ekki hann ættleiddi littla geimverubarnið sem fæddist. Það var strákur og var geimvera og hét Teddu Scotford Lingo #246875310000.

Þegar að hann varð stór þá fór hann í geiminn (úr sjónaukanum) og varð óléttur og fæddi geimveru því að hann var geimvera en það var ekki ein geimvera sem fæddist heldur tvær! Þeir Tedufann Tudu-Funn Sing Lee #F739U3859C2540K# og Scotford Teck #EIGHT# Ech #5F5I5F5I5# Tech #FUFU867UFUF5898. Já.. þetta voru tveir strákar!

Og þegar Scotford Teck #EIGHT# Ech #5F5I5F5I5# Tech #FUFU867UFUF5898 varð fullorðinn giftist hann gullfallegri konu sem hét Emma. Þau eignuðust eitt barn sem var bara geimvera, annað sem var grænn en ekki með svört geimveruaugu og eitt annað sem var hvorki grænt né með geimveru augu og annað sem var hvítt ekki grænt en með geimveruaugu! Svo það voru fjögur börn!

En Tedufann Tudu-Funn Sing Lee #F739U3859C2540K# var líka mjög skotinnn í Emmu og hún hélt framhjá manninum sínum með bróður hans! Hún eiðilagði fjagra barna hjónaband!

En ég er ekki búin að leika Huff fjölskylduna meira svo.. That’s All Folks!