Georgia Huff hittir mann sem heitir Loki. Loki á konu og ættleitt barn. Þegar að þau kynnast betur fara þau og reyna að eignast barn og hann var að halda framhjá. Það heppnast og eftir þrjá daga er komin lítil stelpa í heimin.

Hún heitir Anita Huff og er með rautt hár eins og móðurin en er annars alveg eins og pabbinn. Georgia elur hana upp og þegar hún verður unglingur kynnist hún Dave Singles og þið sem hafið lesið Singles fjölskylduna þá er Dave orðinn unglingur.

Anita og Dave verða kærustupar og svo kemur fyrsti kossinn. Síðan þegar að hún Anita er orðin fullorðin þá er Georgia orðin gömul. En Dave er ennþá unglingur svo ég leik hann þangað til að hann verður fullorðinn. Anita er með fjölskyldu markmiðið og Dave líka. Þau trúlofast og svo giftast.

Síðan kemur eitt lítið geimverubarn í heiminn sem er bara eins og faðirinn. Alveg grænt, svört geimveru-augu en er með rautt hár. Hann heitir Patrick Don Alexander Scotford Huff. Þá er Georgia orðin amma og Loki líka nema notla afi.

En þetta var lítill strákur og þegar hann varð unglingur var hann tekinn frá þeim. Þau voru svo miður sín að þau fóru strax að reyna að eignast annað. Þegar það fæddist þá var það stelpa sem var eins og tvíburi bróður síns. Alveg eins nema bara stelpa! Hún heitir Gloria Huff.

En svo þá nennti ég ekki að leika þessa fjölskyldu meira og fór í aðra. Þar er einn maður sem ég lét ættleiða og það var Patrick Don Alexander Scotford. Ég lék þessa fjölskyldu þangað til að strákurinn varð fullorðinn. Þá fór ég aftur í hina.

Gloria er orðin fullorðin og þá kynntist hún bróður sínum. Hún átti vinkonu sem var mjög hrifin af honum. Hún kom þeim saman á stefnumót og það gekk vel en þau eignuðust barn saman sem var geimvera eins og vanalega. Hann hét Don Scotford.. sem sagt strákur, geimverustrákur. En hann var tekið af þeim.

Þá ættleiddi Gloria Scotford. Scotford ólst upp hjá föðursystir sinni, sem er Gloria. En besta vinkona Gloriu hætti með Patrick Don Alexander Scotford og hann flutti inn til systur sinnar.

Gloria ól Scotford vel upp. Hann komst í einkaskóla og eignaðist mjög marga góða bestu vini. En bróðir Gloriu, Patrick Don Alexander Scotford, var frekar óheppinn þegar að hann var að fá sér “TV dinner” og það kviknaði í. Það var þá kominn einn legsteinn í garðinn.

Þegar Gloria dó erfði Scotford húsið hennar. Hann eignaðist kærustu og hún flutti inn. En þau eignuðust barn og var geimvera með svört augu sem var sköllóttur strákur og hét Tedufann.

Þegar Tedufann varð fullorðinn var hann ennþá sköllóttur og líktist geimveru mikið. En móðir Tedufann druknaði og þá voru tveir legsteinar komnir í garðinn.

Þegar Tedufann varð stór þá dó Scotford, faðir hans, úr elli. En stuttu eftir það þá kynntist hann Melkorck #21# Jane Funn #9116 Tech. Hún var einnig geimvera og var nauðalík honum.. geimveruleg. Og þau enduðu saman og eignuðust fimm geimverubörn. Þau Teck (KK), Jane #934RT (KVK), Kunn Merlin (KK), Poko-Fann #581# (KVK)og Tedu Funn(KK).

Ég hef ekki leikið meira en svona endaði þetta!

Hin stóra Huff fjölskylda.. meðlimir:

Georgia
Loki
Anita
Dave
Patrick Don Alexander Scotford
Gloria
Don Scotford
Tedufann
Melkorck #21# Jane Funn #9116 Tech
Teck
Jane #934RT
Kunn Merlin
Poko-Fann #581#
Tedu Funn