The Urbz


Þegar 24. desember gekk í garð fékk ég The Urbz í skóinn. Ætlast var greinilega til að ég hefði eitthvað að gera þangað til jólin kæmu en ég fór ekkert í hann. Stundum er ég of hrædd við að prufa leiki í playstation því ég er svo hrædd um að ég komist ekkert áfram eins og í SiMs bustin out og Harry Potter 3.
En já núna var ég að prufa hann í fyrsta skipti og hann er bara ágætur sko.

Ég bjó til stelpu sem hét Demitra (man ekki eftir nafnið) og hún var með bleikt hár og í einhverjum fötum sem ég mátti ekkert velja.

Hún byrjaði á lestarstöð þar sem svona goth Urbar voru. Ég fór að kynnast þeim og fleira. Komst ég þá að því að maður á reyna að verða mjög vinsæll því þegar ég fór að tala meira og meira við þá þá fékk ég alltaf fleiri stjörnur og núna er ég komin með eitthvað 43.
En hún semsagt er þarna bara að spóka sig og kynnast nýju fólki. Svo fær hún sér vinnu og aflar sér peninga.

Seinna þegar líða fer á kvöld þá er svona party inn í sérstöku húsi. Hún ætlar að fara inn en stóri feiti dyravörðurinn leyfir henni það ekki því hún er ekki rétt klædd. Þá finnur hún svona sérstakt herbergi eða réttara sagt gamlan lestarvagn og fer þar inn.
Þar skiptir Demitra um föt og setur sig í goth stíl. Einnig fær hún tattú á vinstra handlegginn og tvö eða þrjá eyrnalokka í vinstra eyra og svo hálsmen með lykli.

Þegar hún fer út og prufar að fara aftur inn þá leyfir dyravörðurinn henni það. Þarna inni er svaka partý og slagsmálakassi. Hún fer þar inn og byrjar að slást en tapar og tapar peningum í leiðinni.

Þá fer Demitra bara að kynnast fólkinu í í partýinu og fær sífelt fleiri stjörnur. Svo kissir hún einn strákinn en þar sem hann hefur engan áhuga á henni þá neitar hann.

Demitra fer svo að sofa eftir partyið. Næstu tvo daga er hún alltaf að gera það sama. Vinna sér inn peninga og tala við fólkið. En svo kemst hún í garð þar sem tískan eru hjólabretti. Hún fer og kynnist fólki þar og skemmtir sér en kann því miður ekkert á hjólabretti og gengur því illa í vinnu sem hún fékk sér sem atvinnumaður á hjólabretti.

En eftir þennan ömurlega vinnudag þá reynir hún að komast í partýið þar en því miður, dyravörðurinn segir

,,Ekki réttur klæðnaður”

Þá fer Demitra að skipta um föt og velur sér föt. Býr sér til bol og finnur gallabuxur (Ef maður vildi vera í flottum gallabuxum þá þurfti maður líka ða vera í svona einhvernveginn streng) en þá á hún ekki nema 9$ svo hún getur ekki keypt sér meira.

Hún hættir því að kaupa og reynir aftur að komst í partýið og það tekst. Þar kynnist hún fleiru fólki og talar við það en þá er hún orðin þreytt og fer því aftur á lestarstöðina og fer að sofa (Þar er svona hús þar sem er fataskápur og rúm) Næsta dag fer hún að vinna sér inn og fær síflet fleiri peninga á lestrarstöðinni. En þá kemur einhver strákur og stelur af henni peninga svo hún þarf að vinna meit og meir. Svo fer hún í slagsmálakassan og vinnur og á þá 750$. Þá fer hún aftur í garðinn og fær sér nýjan stíl sem á við hjólabretti.

Hún fær sér tvö ný tatto. Eitt hjá úlnliðnum hægra megin og háhyrning á bakið. Svo fær hún nýjar gallabuxur (Flottustu en þurfti þá að vera í bleikum streng) og fær sér nýtt belti en heldur sama hálsmeninu. Hún fær líka flotta strigaskó. En þar sem hún er leið á bleika hárinu sínu ákveður hún að skipta og fær sér slétt brúnt hár.
Þegar hún er bún að breyta sér svona mikið fer hún og reyni fyrir sér aftur í hjólabrettivinnunni og þá tekst það og hún vær 450$.

Jæja, ég er ekki með meira því ég er ekki komin lengra. Vona að þið hafið fengið einhverjar upplýsingar.
Endilega kaupið ykkur leikinn.