Darren Fox flutti ásamt tveimur ungum dætrum sínum, Jenna og Nina í bæinn. Á sama tíma var ung kona að flytja með ungan son sinn. Þetta var Josie Karlson og DanSon Karlsson. Einn daginn í verslunarferð rakst Darren á Josie og hófu þau góða vináttu. Eitt kvöldið gekk vinátta þeirra aðeins lengra og stuttu seinna uppgötvaði Josie að hún var ólétt.Hún hætti að hafa samband við Darren og ákvað að hún skildi ala barnið ein. En þegar hún fæddi, breyttist margt, því ekki fæddi hún eitt barn heldur tvo. Litla stelpu Tara og lítinn strák Colin. Þegar tvíburarnir voru að byrja í skólanum, rakst Darren á þá og sá hversu lík þau voru honum. Sömu augun og sama rauða hárið. Hann fór til Josie sem sagði honum að þetta væru börnin hans. Josie leið mjög illa yfir þessu og ákvað að reyna að stofna til sambands við Darren.Fljótlega gengu þau í hjónaband.Þegar kom að því, var Nina, Jenna og DanSon öll flutt út. Þó öll í sitthvort húsið. Nina bjó með Alex Cooper, Jenna með Justin Evans og DanSon einn. Darren og Josie voru himinlifandi þegar þeirra fyrsta barnabarn kom í heiminn. Nina og Alex eignust strák, Jake að nafni. Nokkrum dögum seinna tilkynnti DanSon að hann væri orðinn pabbi. Hann hafði eignast lítinn strák með Danielle Taylor. Það versta var að Danielle var gift. Kevin Taylor var maðurinn hennar og leyfði hann DanSon ekki að sjá son sinn. Josie heimtaði að DanSon myndi gera eitthvað en enn í dag hefur ekkert breyst, nema að frétt er í loftinu að Josie eigi von á barni.