Fyrsta skiptið sem ég fór í Sims 2, bjó ég til hjón Jack & Emily Cooper. Til að byrja með áttu þau lítin pening þannig að Jack fékk vinnu sem öryggisvörður. Emily varð fljótlega ólétt og eignaðist litla stúlku Nikita. Meðan Nikita var enn lítil, eignaðist Emily annað barn. Lítinn strák að nafninu Alex. Nikita og Alex stækkuðu mjög fljótt. Nikita varð ástfangin af Sean, stráknum í næsta húsi. Fljótlega gengu þau í hjónaband og fyrsta barn þeirra Katie fæddist. Á meðan þessu stóð flutti Alex út og varð ástfangin af Nina. Nikita varð fljótlega ólétt aftur en því miður lifði Emily ekki til að sjá fæðingu Lizzie. Jack varð alveg miður sín en honum leið aðeins betur þegar Nikita fæddi honum þriðja barnabarnið Michael. Alex og Nina giftu sig og eignuðust lítinn strák Jake. Nikita og Sean eignuðust nú fjórða barnið, litla stúlku Naomi. Jack lést skömmu eftir fæðingu Naomi. Katie og Lizzie voru nú orðnir táningar og báðar ástfangnar af sama stráknum, Justin Evans. Á tímabili þoldu systurnar ekki hvor aðra og um leið og Katie gat, flutti hún út. Sean lést skömmu seinna og var nú Nikita ein eftir með Lizzie, Michael og Naomi. Allt stress safnaðist upp og á endanum voru Michael og Naomi tekin í burtu. En til allra hamingju ákvað góður fjölskylduvinur, Melissa Fancey að taka þau að sér.