Sims 2 cheats! Blessuð/aður

Eins og þið kannski vitið þá er Sims 2 komið út.. Það fer nú ekki framhjá neinum, hann er auglýstur á fullu.. Já ég er búin að prufa hann og ég bjó mér til fjölskyldu sem hét..
The Lexington Family..

Í henni voru hjón þau voru bæði voða sæt.. og þau áttu lítið smábarn… En fjölskyldan lifði voðalega stutt og ég ætla að segja ykkur frá því..

Maðurinn var að elda og það kviknaði í og ég hafði gleymt að setja reykskynjara og hann brann inni maðurinn.. Þá voru bara litla smábarnið og konan eftir.. Þá prufaði ég að deleta konunni til að láta hana fá allt grænt, en þá eyddist hún alveg:S
Þá var litla smábarnið eitt eftir og það fór bara að leika sér í klósettinu að skvetta upp úr því og eitthvað..! Svo að ég eyddi því líka og bjó mér til aðra fjölskyldu…
Mjög svo áhugavert.. er það ekki?

————-
Sims 2 cheat!


Ýtið á CTRL + SHIFT + C til að opna “svindlgluggann”

Kaching = 1000 simoleans

moveObjects on = Hægt að deleta flestu!

moveObjects off = Taka moveObjects-ið af!

motherload = 50,000 simoleans

Takk fyrir!