Jæja, hér hef ég ákvaðið að skrifa um fjölskylduna mína sem ég hef átt mjög lengi.

Fercano fjölskyldan myndast

Ég bjó til karl sem hét Anton Fercano. Áætlun hans í lífinu var bara að vera í vinnunni og koma him og fara í vinnuna og koma heim. En svo fór hann oft út og hitti nokkrar konur. Hann varð mjög ástfanginn en aldrei alvöru ástfanginn. Hann bauð þeim heim og bauð þeim mat en þegar hann bauð þeim að giftast sér, þá sögðu þær nei og ekkert var meira úr því. Þegar Anton var búinn að vera með nokkrum konum þá fór hann einu sinni út í bæ, til að verlauna sér fyrir að hafa fengið launahækkun í vinnunni. En þá, þá sá hann ástina sína. Það var Diana Ormec. Einhver kona sem ég bjó ekki til. En hann var yfir sig ástfanginn af henni. Þegar hann fór að tala við hana og meira og meira.
Segjum þetta bara á mennsku máli ef þetta hefði verið í alvörunni. Þá sá hann að hún hafði töfrandi persónuleika og var sú rétta fyrir hann.
Svo þegar hann var búinn að kynnast henni mjög mikið þá fóru þau á veitingastað. Hann bauð henni forrétt, aðalrétt og eftirrétt. Hún var hæst ánægð með það. En þegar þau voru að borða náðu þau ekki lengra en að kela en það var alveg nóg fyrir manninn. En svo þurfti hann að segja bless og þess vegna kvöddust þau. En seinna bauð hann henni aftur út að borða og hún þáði það strax. Þegar þau voru komin á veitingastaðinn þá fengu þau sér að borða. Svo fóru þau á barinn. Þar pantaði Anton tvo drykki. Þegar þau voru á barnum þá kysstust þau. Svo kysstust þau aftur og svo töluðu þau. Þegar þau voru farin af barnum þá kysstust þau aftur og þetta var rómantískur koss. En allt tekur enda og svo þurftu þau að fara. En seinna bauð Anton Diönu heim. Þar áttu þau góðastund þegar þau voru að borða því að karlinn hafði gert svo flott fyrir hana. Svo kysstust þau smástund. En svo fór Anton upp í hjartarúmið. Diana fór með honum og þau gerðu play.
—————————————-
Þegar þau voru búin í rúminu þá þurftu þau að kveðjast.
Seinna bauð Anton henni aftur heim. En þá bauð hann henni að giftast sér og Diana sagði já. Svo hún flutti inn til hans.

Nokkrir dagar liðu og þau fluttu í stærra hús.

Svo fóru þau afturúpp í rúmið og gerðu play og eignuðust barn sem var stelpa og var skýrð Carmen.
Þá var fjölskyldan orðin
Anton Fercano
Diana Fercano
Carmen Farcano

Carmen stækkaði fljótt og varð mjög dugleg í skólanum og fékk peninga þegar hún kom heim með góðar einkunnir. Svo voru Anton og Diana alltaf að vinna. Svo fóru þau aftur í rúmið og eignuðust Britney (ég er ekki með eitthvað Britney Spears æði). Britney stækkaði fljótt og varð líka dugleg í skólanum. Carmen og Britney voru góðar vinkonur.

Svo seinna vildu Diana og Anton gefa þeim eitthvað. Þá ákváðu þau að gefa þeim hudn og þess vegna fóru þau og keyptu Golden retriver hudn sem átti að heita Toppur.

Nú var fjölskyldunni farið að farnast svo vel og búin að eignast nóg af peningum svo þau ákváðu að skella sér í sumarfrí. Þess vegna fóru þau á risastórt hótel á strönd og gistu þar í eina nótt. Svo fóru þau á stórt hótel í snjó og gistu þar eina nótt og svo á veiðistað og gistu þar eina nótt. Fercano fjölskyldan skemmti sér vel í þessu ferðalagi og kom úrvinda heim. EN þá byrjaði daglega vinnann. En þau voru alltaf glöð og hamingjusöm saman

ENDIR!!!!!

Kveðja
tigga