The millionere family Jæja ég mig langaði að segja ykkur frá einni fjölskyldu sem ég bjó til sem hét the millionere family. Ég ákvað að reyna búa til einhverja spennu í leikinn þegar ég bjó til þessa fjölskyldu og hérna er sagann af því.
Fyrst var þetta bara einn karl sem hét Joe og var ofboðslega ríkur og átti risahús og lifði í algjörum lúxus. En einn daginn uppgötvaði hann hvað vantaði í líf sitt. Konu. Hann ákvað að reyna að fá sér konu og kynntist einni (hún hét ekki neitt en ég kalla hana bara konuna)sem leit mjög vel út og þau urðu fljótlega ástfanginn. Þau giftu sig og Joe bjóst við að eftir þetta mundi hann lifa hamingjusömu lífi. Einn daginn ákváðu þau að þau vildu eignast barn þau eignuðust litla stelpu sem þau kölluðu Lönu. En konan hafði síðan engan tíma fyrir barnið því hún var allan daginn að daðra við aðra karlmenn og var orðinn ástfanginn af manni sem hét Johnny Yahoo. Joe var farið að líða illa og að lokum kom vonda konan og tók barnið þeirra. Þá ákváðu þau að eignast annað barn. Það var strákur sem konan skýrði Johnny í höfuðuð á framhjáhaldskærasta sínum(maðurinn vissi ekki ennþá um hann). En einn daginn uppgötvaði Joe að konan var að halda framhjá honum og vrð alveg ofboðslega reiður og hætti að elska konuna sína. Í öllum látunum gleymdist Johnny(barnið ekki kalrinn) og var líka tekinn. Eftir þetta lagðist Joe í þunglyndi en konan giftist Johnny og hann flutti inn til þeirra. Konan var hryllilegur sóði og húsið breittist í algjöra svínastíu eftir að Joe hætti að þrífa. Fljótlega gafst hún samt upp á Johnny og varð ástfanginn af annarri konu (hún var greinilega tvíkynhneigð). Hin konan flutti líka inn til þeirra og lifðu þau þá öll 4 í sama húsi. En konan var ekki lengi með hinni konunni(hún hét heldur ekki neitt,var í sömu fjölskyldu og hin) og giftist öðrum karli. Að lokum var hún orðinn svo leið á öllu þessu væli í hinum að hún lokaði þau hvert inni í einu herbergi til að drepa þau. Einn daginn kviknaði svo í þegar hún var að elda. Hún slapp naumlega frá eldinum en hafði fengið góða hugmynd. Fólkið í herbergjunum var ekki ennþá dautt svo hún setti arinn inn í herbergið hjá einum karlinum og kveikti í honum svo hann brann til ösku. Stuttu síðar dóu hinir karlarnir og hin konan brann líka til ösku. En þar sem konan var nú orðinn alræmdur morðingi vildi hún ekki lifa lengur og ákvað að fremja sjálfsmorð og drekkti sér í sundlauginni.