Ég bjó til einn mann í sims sem átti að vera rosa vinsæll eða fullt af konum sem hann væri ástfanginn af. Ég gerði hann geggt nördó með gleraugu og hár útí loftið en samt var hann svolítið töff gaur. Ég byrjaði á því að láta hann vera bara eikkað kósý heima hjá sér í rosa sætu litlu húsi og var að bíða eftir að það kæmi eitthver kona gangandi framhjá. En það var greinilega ekki að ganga þannig að ég hélt partý. Í partýið komu hellingur af stelpum því að ég bjó til eina fjölskyldu þarna í hverfið sem voru 8 konur.
hann var að reyna að nálgast sumar en þær voru ekkert allar neitt sérlega hrifnar af honum. En það voru tvær sem alveg féllu fyrir honum önnur þeirra var ein kona sem var ég og hin hét Beyonce. Svo gerðist það sem ég hata svo mikið jújú talvan datt út úr leiknum gerist bara stundum maður er bara að bíða eftir að hún krassi það er nefnilega svo mikið í henni. En ég fór aftur í leikinn og sótti kallinn og gerði nýtt hús og það var meira að segja ennþá meira krúttó. Ég hélt þá annað partý og ákvað þá bara að hann yrði hrifin bara af eitthverjum köllum svo hann fór og talaði við Jeff Plesant sem er gaur sem fylgir með leiknum. Þeir kjöftuðu og kjöftuðu og klukkan varð tólf þá meig Jeff á sig og varð leiður og fór. Þá nennti ég ekki að halda annað partý svo ég lét hann fara niður í studio town þó að hann væri ekki með agent og fann hann þar tvo menn sem urðu vinir hans. Svo fór hann heim úr studio town og ég ákvað að ég myndi reyna að gera hann að superstar svo að hann fór að spila á píanó, æfa sig á body tækinu og talaði við sig í spegilinn. Svo fór hann niður í town og söng fyrir nærstadda og kom heim með eina og hálfa stjörnu. Svo daginn eftir fór hann og söng meira og kom heim með tvær stjörnur svo fór hann einu sinni enn og kom heim með tvær og hálfa og bráðvantaði vini svo núna er hann að reyna að eignast vini.
….