Okey kallið mig skrítnu nöfnum ef þið viljið ;) En ég er þannig sniðugur að ég ákvað að prófa Sims leikinn hjá systur minni, sú stelpa er á hverju kvöldi föst fyrir framan tölvuskjáinn í Sims. Hún keypti sér Sims superstar fyrir nokkru og ég ákvað að prófa hann. Kom mér svo skemmtilega á óvart að þetta er bara þónokkuð góður leikur, ég var samt stundum í Sims fyrsta leiknum þegar hann kom út en síðan slökknaði áhuginn á að vera í Sims. En allaveganna mér leiðist svolítið núna svo að ég ætla að skrifa um eina fjölskyldu sem ég bjó til.

Ég fór í The Sims Make a Celebr….. ( svonna forrit sem þú nærð í á netinu og getur gert Simsinn þinn rosalega sniðugan ) Allaveganna ég bjó til eitthvern karl sem fékk nafnið Charlotte Simpson ( ég veit að það er ekki nafn á kalli en jæja … ) Síðan bjó ég til konu sem fékk nafnið Matt Brothery ( karlanafn en jæja … ) svo komu krakkarnir, Snati, Tinna og Moli svo bjó ég til einn fullorðinn í viðbót sem var kona sem fékk nafnið Fred Durst .. ( jájá ég er svoldið skrítinn .. ) Eftir að ég var búinn að “import-a” þessum Sims-um sem ég var búinn að gera… fór ég í sjálfan leikinn. Valdið þessa skrítnu fjölskyldu, keypti lóð gerði síðan “ Ctrl + Alt + C ” og skrifaði Rosebud ( eins og flest Ykkar vita …. ) Bjó til stærðarinn hús en gerði það þannig að stóru glugganir sem taka 2 stæði á lóðinni. Svo ég setti útidyr, og svo voru bara þessir stóru gluggar allt í kringum húsið ( vona að þið skiljið mig ) þetta hús var tveggja hæða ( svonna næstum ) því ég setti stiga á 1.hæðina og gerði svo bara gólf og grindverk á 2.hæðina. Svo þetta er eins konar garður þarna uppí á húsinu !! ( jájá ég er svoldið ofvirkur en jæja… ). Síðan hélt ég bara áfram, setti sundlaug í garðinn, blóm og allskonar dót í garðinn. Keypti svo dýrustu húsgögnin og sum sem ég downloadaði !! ( hmmm…. akkurru heyri ég raddir í hausnum á mér segja ,, Þú ert dead Sims fan ?!? “ ) :) heheheh…
En allaveganna svo byrjaði ég að leika mér, mér datt í hug að láta börnin Snata, Tinnu og Mola vera algjöra Tossa svo þessir krakkar mættu ekki neitt í skólann, greyin fóru í The Military School :) ! En konurnar Fred Durst og Matt Brothery voru báðar að berjast um að hafa Charlotte Simpson !!!!!!! Svo kom á daginn að Fred og Matt fóru í allsherjarslag því Matt var nýbúin að eignast barn með Charlotte og Fred kyssti Charlotte svo að Matt varð reið ! ( ég er algjör ###$$$%%%”“”!! ) En jæja…. þessi fjölskylda er samt svolítið skrítin ! Krakkarnir í hermannaskóla og nú er Charlotte reiður því bæði Fred og Matt eru alltaf að kyssast ;þ ! ( vitið að konur geta orðið hrifnar af konu í þessum leik eraggi ?!? * vona það * ) Svo þetta er allt eitthvað rosalegt vesen, Charlotte er alltaf angrY ! ( enda er hann ekki með neitt í Nice ) :D og hann gengur ekki frá eftir sig og svoleiðis.

En jæja datt í hug að segja ykkur frá mínum raunum af Sims og hvaða brengluðu útgáfu af Sims fjölskyldu ég er með ….