Ég var að fá the sim maken magic og með honum fylgdi diskur með allskonar upplýsingar um sims2 og ég ætla að segja frá einhverju

Í sims2 eru alvöru fjölskyldur, amma, afi, unglingurinn, smábarnið o.s.frv. og allir eru með dna. Kona í sims getur eignast barn og það byrjar allt með smá morgunógleði. Svo fer maginn á henni að stækka og að lokum eignast hún barnið eftir 3 - 4 daga. Það er hægt að eignast tvíbura og þríbura en það er mjög sjaldgæft. Ef simsinn getur eða vill ekki eiga barnið getur simsinn hrink í sæta félagsráðgjafann (sem er ekki lengur gömul kelling) og hann tekur barnið. Svo er líka hægt að giftast honum :) Barnið erfir svo eithvað af dna frá pabba sínum og eithvað frá mömmu sinni. Barnið stækkar svo og verður krakki mjög líkir þeim sem eru núna í sims. Svo verður krakkinn að unglingi sem getur orðið ástfangin og haldið partý þegar foreldrarnir eru ekki heima. Svo verður unglingurinn fullorðinn og flyst að heimann. Þegar hann er búin að koma sér upp fjölskyldu og börnum þá geta amma og afi komið í heimsókn eða þú farið til þeirra. Allir í fjölskyldunni þekkjast og eru tengdir ákveðnum fjölskylduböndum.
Það á líka að vera mikið drama í þessum leik. T.d. er hægt að giftast þrifningarkonunni ef maður vill. Allir simsararnir með sinn eigin persónuleika. Sumir eru mjög feimnir, aðrir eru alltaf hressir og kátir og aðrir mjög illgjarnir og leiðinlegir. Þú átt eftir að geta séð hverjir eru góðir og vondir af því að simsararnir eru með svipbrigði, t.d. brosa þeir. Svo verða húsinn miklu flottari, það er hægt að setja glugga og hurðir á skáveggi og það er hægt að búa til fleiri en tvær hæðir.
Þegar þú ert að búa til simsanna áttu að geta breytt augnlitnum, hárlitnum og öðru og þú getur líka sett þig inn í leikinn! Svo geturu líka búið til veggi og gólf sem þú setur svo inn í leikinn og getur notað í húsin þín. Grafíkin á að vera miklu betri og það er sagt að þetta verði algerlega í þrívídd. Þeir eru líka að hugsa um að hafa 7 aukapakka sem hægt er að bæta við sim2. Ef maður er orðinn þreittur á að taka myndir er hægt að taka upp á video camera.

Sims2 á að koma út vorið 2004. Ef þið viljið vita eithvað meira um þetta farið þá á http://thesims2.ea.com

Vonandi höfðuð þið gaman að ;)
Marta Smarta
-If olive oil is made out of olives and corn oil is made out of corn then baby oil is made out of….OMG!